Welder
Liðsfélagi í suðu
JBT Marel leitar að kraftmiklum liðsfélaga til starfa við rafsuðu og samsetningu á fjölbreyttum tækjabúnaði.
Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allir nýir starfsmenn fá þjálfun. Við bjóðum m.a. upp á fyrsta flokks vinnuumhverfi, fjölskylduvænan vinnutíma, frábært mötuneyti með heitum mat í hádeginu og aðstöðu til líkamsræktar.
Framleiðsla JBT Marel í Garðabæ sérhæfir sig í stuðningi við vöruþróun og framleiðslu á sérhönnuðum verkefnum fyrir okkar viðskiptavini.
Starfið felur í sér:
· Smíði úr ryðfríu stáli
· Samsetningu tækja og búnaðar
· Möguleiki á ferðalögum tengt uppsetningu á búnaði
Hæfniskröfur:
· Mikill áhugi á rafsuðu (TIG)
· Sveinspróf eða haldbær reynsla í málmiðngreinum
· Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli
· Tölvuþekking og áhugi á tækniþróun í iðnaði
· Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu
· Samviskusemi, metnaður og góð öryggisvitund
· Jákvæðni, lífsgleði og lausnamiðuð hugsun
· Áhugi á umbótastarfi (stöðugum umbótum)
· Áhugi á að vaxa og læra
Hvetjum nema í málmiðngreinum að sækja um.
Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Heiðrún Hreiðarsdóttir, heidrun.hreidarsdottir@marel.com.
Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl 2025. Sótt er um starfið á heimasíðu Marel (www.marel.is)