Marel Logo
  • Home
    • Quiénes somos
    • Nuestra cultura
    • Beneficios y desarrollo profesional
    • Todas nuestras oportunidades profesionales
  • Cómo contratamos
  • Comunidad de Talentos
  • Vacantes guardadas
  • DAN
  • DEU
  • ENG
  • ISL
  • NLD
  • POR
  • SLK
  • SPA
Saved jobs

0

Electrician

Full time
11 abr 2025
IS - Gardabaer

Liðsfélagi í hóp rafvirkja

JBT Marel leitar að kraftmiklum liðsfélaga til starfa í hóp rafvirkja við samsetningu á fjölbreyttum tækjabúnaði. Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allir nýir starfsmenn fá þjálfun. Við bjóðum m.a. upp á fyrsta flokks vinnuumhverfi, fjölskylduvænan vinnutíma, frábært mötuneyti með heitum mat í hádeginu og aðstöðu til líkamsræktar.

Framleiðsla JBT Marel í Garðabæ sérhæfir sig í stuðningi við vöruþróun og framleiðslu á sérhönnuðum verkefnum fyrir okkar viðskiptavini.

Starfið felur í sér:

· Víringar á rafmagnstöflum og tengingar á búnaði

· Samsetningu fjölbreyttra tækja og búnaðar

· Spennusetning og úttekt á öryggisbúnaði

· Stillingar, prófanir og gæðaúttektir ásamt frágangi fyrir útflutning

Hæfniskröfur:

· Sveinspróf í rafvirkjun (nemar koma til greina)

· Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði

· Tölvuþekking og áhugi á tækniþróun

· Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu

· Samviskusemi, metnaður og góð öryggisvitund

· Jákvæðni, almenn lífsgleði og lausnamiðuð hugsun

· Áhugi á umbótastarfi (stöðugum umbótum)

· Áhugi á að vaxa og læra

Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Heiðrún Hreiðarsdóttir, heidrun.hreidarsdottir@marel.com. Umsóknarfrestur er til og með 24 . apríl 2025. Sótt er um starfið á heimasíðu Marel (www.marel.com).

Apply Now
  • Marel Logo

    +354 563 8000

  • Redes sociales
  • Industrias
    • Aves
    • Carnes
    • Pescados
    • Alimentos preparados
    • Tratamiento del agua
  • General
    • Servicio
    • Software
    • Noticias
    • Eventos
  • Empresa
    • Acerca de Marel
    • Nuestro personal
    • Centro de Demostraciones
    • Trabajar en Marel
    • Contactar con Marel
  • Inversores
    • Inversores (en Inglés)
  • Aviso legal
    Aviso legal Política de privacidad general

    1999 - 2025 © Marel