Sumarstarf í varahlutateymi - útflutningur
Sumarstarf í varahlutateymi - útflutningur
Marel leitar að skipulögðum og kraftmiklum einstaklingi í sumarstarf í varahlutateymi í framleiðslu Marel. Óskað er eftir starfsmanni í útflutningsverkefni og mun viðkomandi sinna fjölbreyttum verkefnum í alþjóðlegu umhverfi sem felast fyrst og fremst í umsjón með hraðsendingum til viðskiptavina, allt frá samskiptum við innri viðskiptavini á heimsvísu, tiltektum í vöruhúsi, pökkun og skjalagerð.
Varahlutateymi Marel samanstendur af öflugum og fjölbreyttum hóp starfsmanna í varahlutaframleiðslu og varahlutaútflutning.
Starfssvið:
- Afgreiðsla pantana
- Pökkun á varahlutum
- Samskipti við innri viðskiptavini og flutningsaðila
- Reikningagerð
- Undirbúningur útflutningsskjala
- Skráning sendinga
- Þátttaka í stöðugum umbótum
Hæfnikröfur:
- Áhugi á útflutningstengdum verkefnum er skilyrði
- Fyrri reynsla af útflutningi, tollamálum og/eða SAP er kostur
- Góð almenn tölvukunnátta er skilyrði
- Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu
- Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
- Hæfni til að vinna eftir ferlum
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Heiðrún Hreiðarsdóttir, HR ráðgjafi, heidrun.hreidarsdottir@marel.com
Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl 2025.
Einungis er tekið við umsóknum á heimasíðu Marel, www.marel.com/jobs.