Liðsfélagi í samsetningu búnaðar
Marel leitar að kraftmiklum liðsfélaga til starfa við samsetningu búnaðar í framleiðslu sem vill taka þátt í að umbreyta því hvernig matvæli eru unnin. Lögð er áhersla á teymisvinnu og þátttöku í umbótastarfi. Við bjóðum upp á fyrsta flokks vinnuumhverfi og fjölbreytt og skemmtileg verkefni.
Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allir nýir starfsmenn fá þjálfun.
Starfið felur í sér:
Samsetningu tækja og búnaðar
Stillingar og prófanir ásamt frágang fyrir flutning
Hæfniskröfur:
Reynsla og/eða menntun úr iðngreinum er kostur
Reynsla í rafsuðu (TIG) er kostur
Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Tölvuþekking og áhugi á tækniþróun
Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu
Samviskusemi, metnaður og góð öryggisvitund
Jákvæðni, lífsgleði og lausnamiðuð hugsun
Áhugi á umbótastarfi
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veita Hildur Halldórsdóttir, hildur.halldorsdottir@marel.com og Agnar Már Kristinsson, agnar.kristinsson@marel.com.
Umsóknarfrestur er til og með 24.júlí 2024.
#LI-HH1