Liðsfélagi í suðu
Marel leitar að kraftmiklum liðsfélaga til starfa við suðu í framleiðslu sem vill taka þátt í að umbreyta því hvernig matvæli eru unnin. Lögð er áhersla á öruggt vinnulag og þátttöku í umbótastarfi.
Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allir nýir starfsmenn fá þjálfun. Við bjóðum upp á fyrsta flokks vinnuumhverfi og fjölbreytt verkefni.
Starfið felur í sér:
Smíði úr ryðfríu stáli
Samsetningu tækja og búnaðar eftir þörfum
Stillingar og prófanir ásamt frágang fyrir flutning eftir þörfum
Hæfniskröfur:
Sveinspróf eða nemi í málmiðngrein
Mikill áhugi á rafsuðu (TIG)
Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði
Tölvuþekking og áhugi á tækniþróun
Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu
Samviskusemi, metnaður og góð öryggisvitund
Jákvæðni, lífsgleði og lausnamiðuð hugsun
Áhugi á umbótastarfi
Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Halldórsdóttir, Hildur.Halldorsdottir@marel.com.
Umsóknarfrestur er til og með 26. febrúar 2025. Sótt er um starfið á heimasíðu Marel.
#LI-HH1