Warehouse Operator
Full time
13 Mai 2025
IS - Gardabaer
Starf á lager
Marel leitar að kraftmiklum og jákvæðum liðsfélaga til starfa á lager. Hjá okkur færðu tækifæri til að taka þátt í að umbreyta því hvernig matvæli eru unnin, í fyrsta flokks vinnuumhverfi með fjölbreyttum verkefnum.
Starfssvið:
- Móttaka á vörum frá birgjum og skráning þeirra
- Afgreiðsla á vörum samkvæmt pöntunum
- Þátttaka í stöðugum umbótum
Hæfniskröfur:
- Nemi eða lokið námi í framhalds- eða háskóla
- Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu
- Rík þjónustulund og metnaður
- Áhugi á umbótastarfi
- Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
- Hæfni til að vinna eftir ferlum
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Vilji til að læra og vaxa
Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Heiðrún Hreiðarsdóttir, HR ráðgjafi, heidrun.hreidarsdottir@marel.com
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2025.
Einungis er tekið við umsóknum á heimasíðu Marel, www.marel.com/jobs.