Liðsmaður í varahlutateymi
Full time
13 May 2025
IS - Gardabaer
Liðsmaður óskast í varahlutateymi
Marel leitar að kraftmiklum liðsmanni til starfa við varahlutaframleiðslu. Starfið felur meðal annars í sér smíði úr ryðfríu stáli, samsetningu og gæðaskoðun á varahlutum ásamt frágangi fyrir flutning.
Unnið er í sjálfstæðu teymi sem ber sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru.
Verkefni varahlutateymis eru gríðarlega fjölbreytt.
Hæfniskröfur:
- Reynsla í rafsuðu er skilyrði
- Tölvuþekking og færni í teikningalestri
- Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu
- Samviskusemi, jákvæðni og mikill metnaður til að skila góðri vinnu
- Góð öryggisvitund og áhugi á umbótastarfi (stöðugar umbætur)
- Frumkvæði og lausnamiðað hugarfar
- Áhugi á að vaxa og læra
Áhugasamir vinsamlega sækið um starfið í Workday, undir Internal Carreers.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagur Hilmarsson, framleiðslustjóri, dagur.hilmarsson@marel.com.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2025.