(Allar upphæðir eru í evrum)
Góður tekjuvöxtur og 14,2% EBIT
Helstu atriði af 3F 2018:
- Pantanir á þriðja ársfjórðungi námu 267,7 milljónum evra (3F17: 295,6m).
- Tekjur námu 282,0 milljónum evra (3F17: 247,0m).
- EBIT* nam 40,0 milljónum evra (3F17: 37,6m), sem var 14,2% af tekjum (3F17: 15,2%).
- Hagnaður nam 26,7 milljónum evra (3F17: 23,2m).
- Hagnaður á hlut (EPS) var 3,94 evru sent (3F17: 3,29 evru sent).
- Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 31,6 milljónum evra (3F17: 71,8m).
- Skuldahlutfall (nettó skuldir/EBITDA) var x2,1 í lok september samanborið við x1,8 í lok annars ársfjórðungs. Markmið félagsins um fjármagnsskipan er að halda skuldahlutfalli milli x2-3. Marel gekk frá kaupunum á þýska framleiðandanum MAJA á þriðja ársfjórðungi fyrir kaupverðið 35,5 milljónir evra og keypti eigin bréf fyrir 30 milljónir evra.
- Pantanabókin stóð í 510,8 milljónum evra við lok fjórðungsins (árslok 2017: 472,3m).
Töluvert ítarlegri umfjöllun um starfsemi, rekstur og afkomu félagsins má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningarinnar (sjá viðhengi). Íslenska útgáfan veitir aðeins yfirlit yfir helstu þætti uppgjörsins, horfur, fjárfestafund og fjárhagsdagatal.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:
„Við erum ánægð með rekstrarniðurstöðu þriðja ársfjórðungs sem og fyrstu níu mánuði ársins. Á fjórðungnum nam tekjuaukning á milli ára 14% og EBIT framlegð var 14,2%. Á fyrstu níu mánuðum ársins var tekjuvöxtur 17% og EBIT framlegð 14,6%. Hagnaður á hlut hefur aukist jafnt og þétt undanfarin fimm ár.
Á þriðja ársfjórðungi gengum við formlega frá kaupunum á MAJA að heildarvirði 35 milljónum evra og keyptum eigin bréf fyrir 30 milljónir evra. Fjárhagsstaða okkar er sterk og nettó skuldir nema um það bil tvisvar sinnum EBITDA.
Það eru áhugaverðir tímar á alþjóðamörkuðum í kjúklinga-, kjöt-, og fiskiðnaði. Viðskiptahindranir og umrót í alþjóðakerfinu mynda ósamræmi í framboði og eftirspurn matvæla innan heimshluta en á sama tíma er eftirspurn neytenda á heimsvísu að aukast. Þetta kann að hafa í för með sér minni nýfjárfestingar viðskiptavina okkar á næstu tveimur til þremur ársfjórðungum eftir kröftugan vöxt pantana í byrjun ársins. Neytendur leita í auknum mæli eftir öruggum og hagkvæmum matvælum og samhliða því eykst spurnin eftir hátæknilausnum til matvælavinnslu. Við störfum á ört vaxandi markaði og með sterkri markaðssókn og nýsköpun stefnir Marel að innri vexti umfram almennan markaðsvöxt.
Áform um skráningu hlutabréfa Marel í alþjóðlegri kauphöll ganga samkvæmt áætlun. Við höfum þrengt valkosti okkar niður í þrjár mögulegar kauphallir; Amsterdam, Kaupmannahöfn og Lundúnir. Nú er stefnt að tvíhliða skráningu þar sem hlutabréf Marel yrðu skráð í eina af ofangreindum kauphöllum til viðbótar við núverandi skráningu í íslensku kauphöllinni. Það er trú okkar að með því sé hagsmunum núverandi og verðandi hluthafa Marel best borgið.“
Hluthafafundur þann 22. nóvember 2018
Samhliða áætlunum félagsins um tvíhliða skráningu, gerir stjórn félagsins ráð fyrir að óska eftir heimild hluthafa á aðalfundi félagsins árið 2019 til að hækka heildarhlutafé félagsins um allt að 15%, í þeim tilgangi að styðja við árangursríka skráningu á erlendum markaði, virka verðmyndun og seljanleika bréfanna.
Til að samræma hagsmuni núverandi hluthafa og framtíðarhluthafa í tengslum við framangreinda áformaða hlutafjárhækkun, í tengslum við áætlun félagsins um tvíhliða skráningu, leggur stjórn Marel nú fram tillögur til umfjöllunar á hluthafafundi þann 22. nóvember nk., annars vegar um lækkun hlutafjár félagsins og hins vegar um heimild til stjórnar félagsins til þess að setja upp formlega endurkaupaáætlun á eigin bréfum. Tillagan er í samræmi við lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005 og lög um hlutafélög nr. 2/1995.