3F 2019 fjárfestakynning

Placeholder Image

Marel hf. birti uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung 2019 eftir lokun markaðar þann 23. október 2019. Meðfylgjandi má finna 3F 2019 fjárfestakynninguna sem farið verður yfir.

Fundur með markaðsaðilum – vefvarp og símafundur

Í dag, fimmtudaginn 24. október 2019 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur með markaðsaðilum og fjárfestum. Þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á þriðja ársfjórðungi.

Fundinum er einnig vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/IR eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:

IS: +354 800 7520
NL: +31 20 721 9496
UK: +44 333 300 9269
US: +1 833 526 8347

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatenglar Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa yfir 6.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1,2 milljarði evra árið 2018 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, en í júní 2019 fór fram tvíhliða skráning á 15% hlutabréfa í félaginu í Euronext kauphöllinni í Amsterdam.

Marel Q3 2019 Investor Presentation

Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password