Annar ársfjórðungur 2017

Placeholder Image

2F 2017 – Sterk pantanastaða og góður rekstur, seinkun í tekjum vegna tímasetninga stærri verkefna

2F 2017 – Sterk pantanastaða og góður rekstur, seinkun í tekjum vegna tímasetninga stærri verkefna
 

  • Tekjur á öðrum ársfjórðungi 2017 námu 244,0 milljónum evra [2F 2016: 264,2m].
  • EBITDA á öðrum ársfjórðungi 2017 var 44,2 milljónir evra sem er 18,1% af tekjum [2F 2016: EBITDA 48,4m, 18,3% af tekjum].
  • EBIT* á öðrum ársfjórðungi 2017 var 35,9 milljónir evra sem er 14,7% af tekjum [2F 2016: EBIT* 39,7m, 15,0% af tekjum].
  • Hagnaður á öðrum ársfjórðungi 2017 nam 18,6 milljónum evra [2F 2016: 22,1m]. Hagnaður á hlut var 2,62 evru sent [2F 2016: 3,09 evru sent].
  • Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 61,2 milljónum evra á öðrum ársfjórðungi 2017 [2F 2016: 43,7m]. Skuldahlutfall var x2,15 (nettó skuldir/EBITDA) við lok annars ársfjórðungs 2017.
  • Pantanabókin stóð í 418,9 milljónum evra við lok annars ársfjórðungs 2017 samanborið við 390,3 milljónir evra við lok fyrsta ársfjórðungs 2017 [2F 2016: 306,5m].

Markaðsaðstæður eru góðar og samkeppnisstaða Marel er sterk. Pantanir á öðrum ársfjórðungi 2017 námu 273 milljónum evra. Pantanabókin stóð í 419 milljónum evra samanborið við 307 milljónir evra fyrir annan ársfjórðungs 2016. Í byrjun þriðja ársfjórðungs var stærsta pöntun í sögu Marel tryggð með samningi við Costco og Lincoln Premium Poultry í Bandaríkjunum um nýja hátækni kjúklingaverksmiðju. 

Tekjur annars ársfjórðungs 2017 námu 244 milljónum evra og EBIT* var 14,7%. Dreifing á milli vöruflokka ásamt tímasetningu stærri verkefna veldur því að bókfærðar tekjur eru lægri í öðrum ársfjórðungi 2017 en búast má við á næstu misserum. Sjóðstreymi frá rekstri er sterkt og nam 61 milljónum evra á öðrum ársfjórðungi 2017. Skuldahlutfallið er x2,15 EBITDA við lok annars ársfjórðungs 2017. Á stjórnarfundi 26. júlí var heimild veitt til stjórnenda  til að kaupa eigin bréf fyrir allt að 15 milljónum að nafnvirði. Hlutirnir eru ætlaðir sem endurgjald í mögulegum fyrirtækjakaupum.

Tekjur fyrstu sex mánuði ársins 2017 námu 496,5 milljónum evra og eru svipaðar pro forma tekjum fyrstu sex mánaða ársins 2016. Pantanir fyrstu sex mánaða ársins 2017 námu 565,9 milljónum evra samanborið við pro forma 484,9 milljónir evra á fyrstu sex mánuðum ársins 2016. Pantanabókin við lok fyrstu sex mánaða ársins 2017 var 418,9 milljónir evra samanborið við 307 milljónir evra fyrir sama tímabil ársins 2016.

Marel hefur samþykkt að kaupa Sulmaq, brasilískan framleiðanda búnaðar fyrir fyrsta stig kjötvinnslu. Markmiðið er að styrkja stöðu Marel í Suður-Ameríku og tryggja betri aðgang að stækkandi vaxtarmörkuðum fyrir nauta- og svínakjöt. Árlegar tekjur Sulmaq nema um það bil 25 milljónum evra. Búist er við að kaupin gangi formlega í gegn á þriðja ársfjórðungi 2017 að uppfylltum hefðbundnum skilyrðum. Til skemmri tíma litið munu kaupin ekki hafa efnisleg áhrif á rekstrarniðurstöðu Marel. 

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:

„Tekjur annars ársfjórðungs námu 244 milljónum evra með nærri 15% EBIT. Dreifing á milli vöruflokka ásamt tímasetningu stærri verkefna veldur því að bókfærðar tekjur eru lægri í öðrum ársfjórðungi 2017 en búast má við á næstu misserum. Tekjur og rekstrarhagnaður fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2017 eru sambærilegar og fyrir sama tímabil á síðasta ári.

Samkeppnisstaða Marel er sterk og markaðsaðstæður eru góðar. Vöxtur pantana fyrstu sex mánuði ársins var 17% á milli ára. Í byrjun þriðja ársfjórðungs tryggði okkar frábæra teymi stærstu pöntun í sögu Marel með samningi við Costco og Lincoln Premium Poultry um hátækni kjúklingaverksmiðju í Bandaríkjunum. Marel, í samstarfi við viðskiptavini sína er að umbreyta matvælaframleiðslu með því að gera viðskiptavinum sínum kleift að framleiða hágæða matvæli á hagkvæman og sjálfbæran hátt.

Við erum einnig að styrkja stöðu okkar í Suður-Ameríku með kaupum á Sulmaq sem hefur verið í fararbroddi í framleiðslu á búnaði fyrir fyrsta stig kjötvinnslu í þessum heimshluta. Undanfarna tvo áratugi hefur Marel notið mikillar velgengi í kjúklinga- og fiskiðnaði í Suður-Ameríku og nú erum við að undirbúa okkur fyrir frekari vöxt á þessu mikilvæga 600 millljóna manna markaðssvæði.“

Marel undirritar kaup á Sulmaq

Marel hefur samþykkt að kaupa Sulmaq, brasilískan framleiðenda búnaðar fyrir fyrsta stig kjötvinnslu. Markmiðið er að styrkja stöðu Marel í Suður-Ameríku og tryggja betri aðgang að stækkandi vaxtarmörkuðum fyrir nauta- og svínakjöt. 

Sulmaq sem var stofnað árið 1971 er leiðtogi í framleiðslu á búnaði fyrir fyrsta stig kjötvinnslu í Suður-Ameríku. Sulmaq er staðsett í Rio Grande do Sul í suðurhluta Brasilíu. Starfsmenn fyrirtækisins eru um það bil 400 talsins. Vöruframboð Sulmaq samanstendur að mestu af svína- og nautgripa sláturlínum og tækjum til skurðar og úrbeiningar auk flutningstækja. Lausnir og tæki frá Sulmaq er að finna vítt og breitt um Suður-Ameríku og hefur fyrirtækið sterk og góð tengsl við viðskiptavini sína í álfunni. Árlegar tekjur Sulmaq nema um það bil 25 milljónum evra.

Síðustu ár hefur Marel, með innri vexti og yfirtökum skilað góðum vexti. Vöxturinn hefur ekki síst náðst með kaupum á þekktum alþjóðlegum fyrirtækjum á borð við MPS, Stork og Scanvaegt. Með fyrirhuguðum kaupum á Sulmaq styrkir Marel stöðu sína sem leiðandi framleiðandi á háþróuðum heildarlausnum til vinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Marel er með þessu skrefi betur í stakk búið fyrir frekari vöxt á þessu mikilvæga markaðssvæði sem Suður-Ameríka er. Brasilía ein og sér er annar stærsti framleiðandi nautakjöts á heimsvísu og þriðji stærsti framleiðandi kjúklingakjöts.

Búist er við að kaupin gangi formlega í gegn á þriðja ársfjórðungi 2017 að uppfylltum hefðbundnum skilyrðum. Ekki er þörf á samþykki samkeppnisyfirvalda. Stjórnendur Sulmaq: Fernando Roos, Henrique Roos og Julio Roos munu gegna mikilvægu hlutverki í framtíðaruppbyggingu Marel og munu þeir áfram gegna sínum störfum hjá Sulmaq. Þegar formlega verður gengið frá kaupunum hyggjast þeir nota hluta kaupverðsins í að fjárfesta í Marel. Sulmaq verður fyrst um sinn rekið sem sjálfstæð eining með stuðningi Marel á meðan fyrirtækin munu í sameiningu vinna að áætlun um hvernig kraftarnir munu nýtast sem best til að uppfylla þarfir viðskiptavina og markaðarins til framtíðar.

Horfur

Marel stefnir á 12% árlegan meðalvöxt tekna næstu 10 árin.

  • Marel gerir ráð fyrir að markaðsvöxtur nemi 4-6% á næstu árum
  • Marel ætlar að vaxa hraðar en markaðurinn með sterkri markaðsstöðu og nýsköpun
  • Áframhaldandi traustur rekstur og sterkt sjóðstreymi getur stutt við 5-7% ytri meðalvöxt á ári
  • Marel gerir ráð fyrir að hagnaður á hlut vaxi hraðar en tekjuvöxtur

Áætlaður vöxtur verður ekki línulegur og veltur á þeim tækifærum sem í boði eru hverju sinni og hagsveiflum. Gera má ráð fyrir því að afkoman verði breytileg milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar, sveifla í pöntunum og tímasetninga stærri verkefna.

Kauphallardagur Marel í Danmörku

Marel heldur kynningarfund með fjárfestum og markaðsaðilum í sýningarhúsi sínu Progress Point í Kaupmannahöfn þann 2. nóvember 2017. Frekari upplýsingar og skráning verða kynnt á heimasíðu félagsins www.marel.com á komandi vikum.

Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta uppgjörsins en uppgjörstilkynning

í fullri lengd á ensku er aðgengileg á heimasíðu Marel og má þar m.a. finna lykiltölur og yfirlit yfir markaði félagsins; http://marel.com/corporate/investor-relations/publications
 

Kynningarfundur 27. júlí 2017

Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 27. júlí kl. 8:30 í húsnæði þess að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast.

Fjárhagsdagatal Marel

  • 3. ársfjórðungur 2017                     25. október 2017
  • Kauphallardagur Marel                   2. nóvember 2017
  • 4. ársfjórðungur 2017                     7. febrúar 2018

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.

Frekari upplýsingar veitir: Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla og samskipta. Símar: 563-8626 og 853-8626

Marel Q2 2017 Statements Marel Q3 2017 Frettatilkynning PDF

Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password