Árni Sigurðsson ráðinn forstjóri Marel

Arni Sig

Marel tilkynnir um ráðningu Árna Sigurðssonar sem forstjóra félagsins og tekur hann við störfum þegar í stað.

Árni Sigurðsson tók við starfi aðstoðarforstjóra og yfirmanns tekjusviða í nóvember 2022, og þann 7. nóvember á þessu ári tók Árni tímabundið við sem forstjóri félagsins. Árni hefur starfað hjá Marel frá árinu 2014, fyrst sem yfirmaður stefnumótunar og þróunar, og síðar framkvæmdastjóri stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga. Áður starfaði Árni fyrir AGC Partners í London og hjá fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans. Árni er með MBA gráðu frá Harvard Business School og BSc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Arnar Þór Másson, stjórnarformaður Marel:

Það er stjórn Marel ánægjuefni að tilkynna um ráðningu Árna Sigurðssonar sem forstjóra Marel, að undangengnu ráðningarferli sem staðið hefur yfir undanfarnar vikur. Ég hef starfað náið með Árna síðustu ár og fylgst með honum vaxa sem stjórnanda og leiðtoga innan samstæðu Marel, nú síðast í starfi tímabundins forstjóra sem hann hefur leyst farsællega. Við í stjórn Marel erum sammála um að yfirgripsmikil þekking Árna á starfsemi félagsins og alþjóðleg reynsla séu lykilþættir í hæfni hans og sýn til að leiða félagið í gegnum núverandi áskoranir og til frekari sóknar, og ná fram þeirri verðmætasköpun sem í félaginu býr til hagsbóta fyrir hluthafa félagsins og aðra hagaðila.  

Árni Sigurðsson, forstjóri Marel:

Þegar ég hóf störf hjá Marel árið 2014 urðu mér ljós þau stóru tækifæri sem fólust í viðskiptamódeli félagsins og ekki síður þau gríðarlega jákvæðu áhrif sem við getum haft á virðiskeðju matvæla í heiminum. Ég er virkilega stoltur af þeim árangri sem við höfum náð síðasta áratug. Tækifærin framundan eru ekki síður spennandi, og ég mun nota tímann vel næstu mánuði til að meta næstu skref í þeim sóknarfærum. Ég tek stoltur við forstjórakeflinu og hlakka til að starfa náið með samstarfsfólki mínu, viðskiptavinum og öðrum hagaðilum til að tryggja áframhaldandi framþróun og verðmætasköpun Marel, sem umbyltir matvælavinnslu í heiminum.

Sé misræmi milli íslenskrar og enskrar útgáfu tilkynningarinnar gildir sú enska.

Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.



Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password