Fundur með markaðsaðilum
Fimmtudaginn 7. febrúar 2019 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur með markaðsaðilum og fjárfestum. Þar munu Árni Oddur Þórðarson, forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fjórða ársfjórðungi og árinu í heild sinni.
Afkomufundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins, Austurhrauni 9 í Garðabæ. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00.
Fundinum verður einnig vefvarpað á www.marel.com/webcast
Fjárhagsdagatal
- Aðalfundur - 6. mars 2019
- 1F 2019 - 29. apríl 2019
- 2F 2019 - 24. júlí 2019
- 3F 2019 - 23. október 2019
- 4F 2019 - 5. febrúar 2020
- Aðalfundur - 4. mars 2020
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita Tinna Molphy og Marinó Þór Jakobsson í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001.