Afkomufundur með markaðsaðilum
Fimmtudaginn 9. febrúar 2023 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila en þar munu stjórnendur kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fjórða ársfjórðungi og árinu í heild sinni.
Afkomufundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagins í Austurhrauni 9, Garðabæ. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00.
Skráning á vefvarp
Fundinum verður streymt beint á Zoom og upptaka af fundinum verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn.
Fjárhagsdagatal
- Aðalfundur – 22. mars 2023
- 1F 2023 – 3. maí 2023
- 2F 2023 – 26. júlí 2023
- 3F 2023 – 23. október 2023
- 4F 2023 – 7. febrúar 2023
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.