Hið breytta skipulag samanstendur af 7 tekjusviðum, stoðsviðum og sölu- og þjónustusetrum (e. Customer Centers).
- Tekjusviðin eru Poultry, Meat, Fish, Retail and Food Service Solutions (RFS), Service, Software Solutions og Plant, Pet and Feed.
- Þvert á tekjusvið verða starfrækt stoðsvið (e. functions) sem munu styðja tekjusviðin í samræmdri framkvæmd og veita sérfræðiþekkingu.
- Sölu- og þjónustusetur munu styðja við alþjóðlegt sölu- og þjónustunet félagsins og styrkja sambandið við viðskiptavini félagsins um allan heim.
Í fjárhagsuppgjörum félagsins munu uppgjörssvið áfram vera fjögur: Poultry, Meat, Fish og Plant, Pet and Feed.
Breytt skipulag félagsinsFramkvæmdastjórn Marel og skipurit
Í samræmi við nýtt innra skipulag mun framkvæmdastjórn vera skipuð sex eftirfarandi framkvæmdastjórum með það að markmiði að tryggja skilvirkni, hraða og skalanleika:
- Chief Executive Officer (CEO): Arni Oddur Thordarson
- Chief Business Officer and Deputy CEO (CBO and Deputy CEO): Arni Sigurdsson (Business Divisions, Service and Business Development)
- Chief Operating Officer (COO): Linda Jonsdottir (Customer Centers, Innovation, Supply Chain, Marketing, Sales Excellence and Operational Excellence)
- Chief Financial Officer (CFO): Stacey Katz (Finance, IT, Global Business Services and Investor Relations)
- Chief Human Resource Officer (CHRO): David Freyr Oddsson (People & Culture)
- Chief Strategy Officer (CSO): Laus staða (Strategy)
Aðrir stjórnendur Marel
David Wilson, framkvæmdastjóri Marel Meat, lætur af störfum fyrir félagið. David hefur starfað hjá Marel frá árinu 1998 og verið hluti af framkvæmdastjórn félagsins frá árinu 2013. Marel þakkar David Wilson fyrir hans mikilvæga framlag og hollustu síðastliðin 24 ár og óskar honum alls hins besta í framtíðinni.
Roger Claessens, framkvæmdastjóri Marel Poultry, mun taka tímabundið við sem framkvæmdastjóri Marel Meat þar til nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn. Tveir reyndir stjórnendur Marel Poultry, Dirk den Hartog, Service Director, og Arie Tulp, Sales and Marketing Director, munu stýra Marel Poultry tímabundið.
Aðrir núverandi framkvæmdastjórar verða áfram hluti af leiðtogateymi Marel og munu ásamt nýrri framkvæmdastjórn vinna áfram að vaxtarmarkmiðum félagsins.
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001.