Fjárhagsdagatal 2021

Placeholder Image

Marel mun halda aðalfund og birta árshluta- og ársuppgjör félagsins samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali:

Fjárhagsdagatal 2021

AGM 17. mars 2021   Aðalfundur Marel
1F 2021 28. apríl 2021   Árshlutauppgjör. Fjárfestafundur 29. apríl 2021
2F 2021 21. júlí 2021   Árshlutauppgjör. Fjárfestafundur 22. júlí 2021
3F 2021 20. október 2021   Árshlutauppgjör. Fjárfestafundur 21. október 2021
4F 2021 2. febrúar 2022   Árshluta- og ársuppgjör. Fjárfestafundur 3. febrúar 2022

Áður birt fjárhagsdagatal fyrir 2020 er óbreytt:

4F 2020 3. febrúar 2021   Árshluta- og ársuppgjör. Fjárfestafundur 4. febrúar 2021

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar. Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

Fjárfestafundir og vefvarp

Fjárfestum og öðrum markaðsaðilum er boðið á fjárfestafundi sem haldnir eru ársfjórðungslega. Fundirnir fara fram á ensku. Fundunum er vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptökur eru aðgengilegar á www.marel.com/IR eftir fundi. Markaðsaðilum gefst einnig tækifæri til að hringja inn á fundina.

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú um 7.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Þann 8. október lauk Marel við kaupin á TREIF, þýskum framleiðanda skurðtæknilausna, með 500 starfsmenn og um 80 milljón evrur í veltu. Árið 2019, velti Marel um 1,3 milljarði evra, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var stofnað 1983, skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, og tvíhliða skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam í júní 2019.


Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password