Hluthafar JBT samþykkja fyrirhugaða sameiningu við Marel

Abstract 3.jpg

Marel hefur verið upplýst um að á hluthafafundi John Bean Technologies Corporation (JBT), sem fram fór fyrr í dag, hafi heimild til útgáfu nýs hlutafjár í tengslum við valfrjálst tilboð félagsins í allt útistandandi hlutafé Marel hf. verið samþykkt.

Frekari upplýsingar um hluthafafundinn og niðurstöður hans má finna í tilkynningu JBT, sem er aðgengileg hér.

Vinnu JBT og Marel við að uppfylla önnur skilyrði tilboðsins miðar vel. Félögin hafa skilað inn tilkynningum í viðeigandi löndum og landssvæðum um fyrirhugaða sameiningu og eiga nú í samskiptum við eftirlitsaðila um samþykki þeirra svo hægt verði að ganga frá viðskiptunum. Valfrjálst tilboð JBT rennur út kl. 17:00 að íslenskum tíma þann 2. september 2024, nema tilboðstíminn verði framlengdur í samræmi við samkomulag milli félaganna frá því í apríl 2024. JBT vinnur sömuleiðis að undirbúningi umsóknar um tvískráningu hlutabréfa félagsins á Nasdaq Iceland. Er þess vænst að viðskiptin gangi í gegn fyrir lok árs 2024.

Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.


Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password