Marel hf. („félagið“ eða „Marel“), sem er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, kerfa, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski, tilkynnir í dag að félagið hyggi á almennt hlutafjárútboð og skráningu („útboðið“) í Euronext kauphöllina í Amsterdam, til viðbótar við skráningu sína í Nasdaq kauphöllina á Íslandi. Í útboðinu verða boðnir til sölu allt að 100 milljónir nýrra hluta (sem samsvara um 15% af útgefnu hlutafé). Gert er ráð fyrir að skráning í Euronext kauphöllina í Amsterdam muni fara fram á öðrum ársfjórðungi 2019, háð markaðsaðstæðum.
- Skráning hlutabréfa félagsins í Euronext kauphöllina í Amsterdam, til viðbótar við íslensku kauphöllina, mun auka sýnileika Marel og aðgengi að breiðari hópi alþjóðlegra fjárfesta. Útboð á nýju hlutafé mun einnig styrkja fjárhagsskipan félagsins og verða hlutirnir skráðir í gjaldmiðli sem styður betur við stefnu félagsins um framtíðarvöxt og möguleg fyrirtækjakaup.
- Marel var stofnað árið 1983 og er í dag leiðandi á sviði hátæknibúnaðar til vinnslu matvæla, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir kjúklinga-, kjöt- og fiskiðnað. Yfir 6.000 manns starfa hjá félaginu í yfir 30 löndum og 6 heimsálfum. Heildartekjur Marel á árinu 2018 námu 1,2 milljörðum evra.
- Í hópi viðskiptavina Marel eru bæði stór alþjóðleg fyrirtæki sem og fyrirtæki í fararbroddi á sínu landsvæði í um 140 löndum. Gott orðspor félagsins og traust langtíma viðskiptasambönd skila Marel breiðum tekjugrunni. Um 35% af heildartekjum félagsins koma frá þjónustu og sölu varahluta sem eru reglulegar tekjur og óháðar hagsveiflum og breytingum á eftirspurn á alþjóðamörkuðum.
- Marel fjárfestir árlega um 6% af heildartekjum í nýsköpun og vöruþróun og hefur gert um árabil. Félagið hefur einnig þróað sinn eigin hugbúnað fyrir matvælavinnslu sem gerir vinnsluaðilum kleift að hámarka nýtingu og afköst, fylgja gæðastöðlum og tryggja matvælaöryggi með rekjanleika í hverju skrefi. Hugbúnaðurinn hefur verið settur upp í um 2.000 verksmiðjum um allan heim.
- Vöru- og þjónustuframboð Marel gerir viðskiptavinum félagsins kleift að auka nýtingu og afköst, tryggja gæði og fæðuöryggi og bæta öll stig framleiðslunnar með tilliti til sjálfbærni og velferð dýra.
- Stjórnendur Marel búa yfir áralangri reynslu og hafa skilað góðum rekstrarárangri. Aukin hagkvæmni í rekstri og sterkt sjóðstreymi hefur ennfremur stutt við áframhaldandi fjárfestingu í markaðssókn félagsins sem skilað hefur hluthöfum góðri arðsemi.
- Marel stefnir að 12% meðalvexti á ári á tímabilinu 2017-2026, þar af um 4-6% með innri vexti og um 5-7% í gegnum fyrirtækjakaup. Á sama tímabili er gert ráð fyrir að markaður með búnað til matvælavinnslu fyrir kjúkling, kjöt og fisk muni vaxa um 4-6% árlega.1
- Frá skráningu félagsins í Kauphöllina á Íslandi árið 1992 hafa heildartekjur þess vaxið að meðaltali um 22% á ári, bæði með innri og ytri vexti. Hluthafar félagsins eru um 2.500 talsins og er Marel langstærsta félagið á markaði hérlendis, en stærð þess nemur um 36% af markaðsverðmæti allra skráðra félaga í Nasdaq kauphöllinni á Íslandi. Tvíhliða skráning hlutabréfa félagsins í Euronext kauphöllina í Amsterdam er því eðlilegt næsta skref í frekari framþróun og vaxtarstefnu félagsins.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel:
“Þetta er stór dagur fyrir Marel, þar sem við tilkynnum um fyrirætlanir okkar um hlutafjárútboð og skráningu í Euronext kauphöllina í Amsterdam. Við störfum á ákaflega spennandi vaxtarmarkaði, þar sem aukin fólksfjölgun, stækkun millistéttarinnar og stækkun borgarsamfélaga drífur áfram eftirspurn eftir hágæða matvælum sem eru framleidd á sjálfbæran og hagkvæman hátt. Marel er staðsett í miðju þessara drifkrafta og í samstarfi við viðskiptavini höldum við áfram að kynna hátæknivörur, hugbúnað og þjónustu sem eykur afköst og nýtingu og minnkar sóun. Skráningin í Euronext í Amsterdam mun styðja við markmið okkar um 12% árlegan meðalvöxt tekna á tímabilinu 2017-2026 sem byggir á öflugri markaðssókn og nýsköpun, samvinnu við lykilsamstarfsaðila ásamt kaupum á fyrirtækjum.“
Ásthildur Margrét Otharsdóttir, stjórnarformaður Marel:
„Þetta er mikilvægur áfangi í sögu Marel sem hefur vaxið frá rótum sínum í Háskóla Íslands í að vera í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Skráningin í Euronext kauphöllina í Amsterdam kemur til viðbótar við núverandi skráningu á Íslandi og veitir betra aðgengi að alþjóðlegum fjárfestum. Útboð á nýju hlutafé mun einnig styrkja fjárhagsskipan félagsins og veita reynslumiklu stjórnendateymi okkar styrkan grunn og alþjóðlegan gjaldmiðil til að framfylgja metnaðarfullri vaxtarstefnu okkar.”
Helstu atriði úr stefnu og starfsemi
Spennandi markaðir, studdir af náttúrulegum vexti
- Marel leggur áherslu á hraðvaxandi markað fyrir kjöt, kjúkling og fisk sem er áætlað að sé af stærðinni 1.200 milljarðar evra að markaðsverðmæti. Þar af er áætlað að stærð þess markaðar sem Marel starfar á sé um 12 milljarðar evra að markaðsverðmæti og áætlað að vaxi að meðaltali um 4-6% árlega frá 2017-2026, það er markaður fyrir tæki, vélbúnað, hugbúnað og þjónustu fyrir matvælavinnslu, allt frá slátrun til pökkunar.
- Það sem drífur áfram væntan markaðsvöxt er undirliggjandi eftirspurn eftir framleiðslugetu, betri nýtingu á hráefni og þörf á aukinni sjálfvirkni, til viðbótar við auknar áherslur neytenda og eftirlitsaðila á sjálfbærni, fæðuöryggi, næringu, heilsu og velferð.
- Lýðfræðiþróun á heimsvísu hefur grundvallaráhrif á væntan markaðsvöxt fyrir neyslu á dýraprótíni. Gert er ráð fyrir að mannfjöldi í heiminum verði yfir 10 milljarðar árið 2050, en einnig er gert ráð fyrir hraðri stækkun borgarsamfélaga og fjölgun fólks sem mun tilheyra millistétt (sérstaklega í Asíu). Gert er ráð fyrir að um 2 milljarðar manna muni bætast við millistétt til ársins 2030, sem mun hafa í för með sér aukna prótínneyslu sem helst í hendur við auknar tekjur.
Marel hefur forystu á heimsvísu í hátæknibúnaði og heildarlausnum fyrir matvælaiðnað sem byggist á áralangri fjárfestingu í nýsköpun og vöruþróun í samstarfi við viðskiptavini
- Skýr stefna og vel skilgreint viðskiptamódel sem felst í þróun og sölu á hátæknikerfum, hugbúnaði og þjónustu við matvinnslufyrirtæki í kjúklinga- kjöt og fiskiðnaði.
- Marel hannar, framleiðir, selur og þjónustar hátæknibúnað fyrir matvælaiðnað, allt frá stökum tækjum yfir í heildarvinnslukerfi ásamt hugbúnaði og þjónustu.
- Um árabil hefur Marel fjárfest um 6% af heildartekjum í nýsköpun og vöruþróun til að viðhalda leiðandi stöðu í þróun á hátæknivinnslu og hugbúnaði fyrir matvælaiðnað og þannig tryggt samkeppnisstöðu sína og stutt við innri vöxt. Árið 2018, fjárfesti Marel fyrir 73,7 milljónir evra í nýsköpun og vöruþróun þar sem hugvit og hátækni nýtist öllum þremur greinunum; kjúklingi, kjöti og fiski.
Stór og fjölbreyttur hópur viðskiptavina sem sinnt er af alþjóðlegu sölu- og þjónustuneti og sveigjanleg framleiðsla
- Marel býr að traustum langtímasamböndum við breiðan hóp viðskiptavina í yfir 140 löndum, allt frá minni vinnslum til stærstu alþjóðlegra matvælaframleiðenda á sviði kjúklinga-, kjöt- og fiskvinnslu. Sem dæmi um dreifðan hóp viðskiptavina, telur stærsti viðskiptavinur félagsins undir 5% af heildartekjum.
- Alþjóðlegt sölu- og þjónustunet félagsins tryggir nálægð við viðskiptavini og styður við vaxandi tekjur þess á sviði viðhalds, þjónustu og varahluta á þegar uppsettum búnaði frá Marel í verksmiðjum um heim allan.
- Tekjur Marel dreifast vel eftir landsvæðum, iðnuðum og framleiðslustigum, en 35% af tekjum félagsins koma frá þjónustu og varahlutum sem eru stöðugar tekjur lítt háðar hagsveiflum.
- Heildarvelta Marel á árinu 2018 var 1,2 milljarður evra sem er 15,4% aukning á milli ára. Þar af koma 12,5% frá innri vexti. Félagið sér góð tækifæri til frekari markaðssóknar og vaxtar.
- Alþjóðlegt sölu- og þjónustunet félagsins, ásamt breiðu vöruframboði heildarlausna í matvælavinnslu fyrir kjúkling (53% af heildartekjum), kjöt (32%) og fisk (13%), veitir sveigjanleika gegn mögulegum sveiflum í eftirspurn.
Reynslumikið stjórnendateymi hefur náð góðum árangri
- Reynslumikið stjórnendateymi með yfirgripsmikla þekkingu á mörkuðum Marel.
- Ráðist var í umfangsmikla hagræðingu árin 2014-2015 með einföldun og skilvirkni að leiðarljósi, en á sama tíma jókst sala um 25% og framlegð jókst töluvert.
- Góður árangur hefur náðst með bæði innri og ytri vexti sem byggist á vel ígrunduðum fyrirtækjakaupum og fjárfestingu í nýsköpun, markaðssókn og innviðum.
- Sterkt fjárstreymi sem styður við áframhaldandi fjárfestingar og skilar verðmætum til hluthafa.
- Pantanabók2 Marel stóð í 474,7 milljónum evra þann 31. mars 2019, sem jafngildir um 38,5% af tekjum síðustu 12 mánaða. Hlutfall pantana og tekna var á sama tíma 0,99 (e. Book-to-Bill)3.
Skýr stefna styður við vaxtarmarkmið
- Stuðningur við heildarvöruframboð þvert á framleiðslustig með áframhaldandi nýsköpun og vöruþróun.
- Öflug fjárfesting í nýsköpun og vöruþróun til að tryggja samkeppnisstöðu og markaðssókn.
- Langtímasambönd við breiðan hóp viðskiptavina og stærri hlutdeild tækja og lausna frá Marel hjá matvælaframleiðendum um heim allan.
- Metnaðarfullar áætlanir um ytri vöxt eftir vel skilgreindri og skýrri stefnu um kaup á fyrirtækjum og samþættingu.
Fjárhagsleg markmið
- Marel stefnir að 12% meðalvexti árlega yfir tímabilið 2017-2026 sem byggir á öflugri markaðssókn og nýsköpun, samstarfi við lykilaðila og með yfirtökum á fyrirtækjum. (Áætlaður vöxtur veltur á hagsveiflum og þeim tækifærum sem eru í boði hverju sinni og gera má ráð fyrir að hann verði því ekki línulegur. Gera má ráð fyrir breytilegri afkomu milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar, sveiflna í pöntunum og tímasetningu stærri verkefna.)
- Marel gerir ráð fyrir að almennur markaðsvöxtur nemi 4-6% til lengri tíma. Með sterkri markaðssókn og nýsköpun stefnir Marel að innri vexti umfram almennan markaðsvöxt.
- Gera má ráð fyrir að áframhaldandi traustur rekstur og sterkt sjóðstreymi geti stutt við 5-7% ytri meðalvöxt á ári.
- Marel gerir ráð fyrir að hagnaður á hlut vaxi hraðar en tekjur.
- Markmið félagsins um fjármagnsskipan er að halda skuldahlutfalli milli x2-3 nettó skuldir / EBITDA. Umframfjármagn verður nýtt til að auka vöxt og verðmætasköpun félagsins.
Arðgreiðslustefna
Marel er með stefnu um útgreiðslu arðs, í formi arðgreiðslna eða endurkaupa á hlutafé, sem jafngildir 20-40% af rekstrarniðurstöðu. Síðustu fimm ár hefur útgreiðsluhlutfall félagsins verið á bilinu 20-30% þar sem umframfjármagn hefur verið nýtt til að auka vöxt og verðmætasköpun félagsins. Fyrir rekstrarárið 2018, greiddi Marel hluthöfum arð sem nam 30% af hagnaði ársins, sem var 33% aukning í arði á hlut á milli ára.
Helstu fjárhagsupplýsingar
Milljónir evra | 2016 | 2017 | 2018 | 1F 2019 |
Tekjur | 9705 | 1.038 | 1.198 | 325 |
EBIT1 | 14,4% | 15,2% | 14,6% | 14,6% |
Mótteknar pantanir2 | 1.0065 | 1.144 | 1.184 | 323 |
Pantanabók3 | 350 | 472 | 476 | 475 |
Handbært fé frá rekstri4 | 131 | 153 | 121 | 44 |
Skuldahlutfall | 2,3x | 1,9x | 2,0x | 2,2x |
Heimild: Upplýsingar frá félaginu. Athugasemdir: 1EBIT aðlagað fyrir útdeilingu kaupverðs (e. PPA), þar með taldar niðurfærslur og afskriftir á árunum 2016-2019. PPA vísar í afskriftir óefnislegra eigna vegna fyrirtækjakaupa. 2Pantanir vísa í heildarfjárhæð pantana viðskiptavina vegna kaupa á vélbúnaði, hugbúnaði, þjónustu og varahluta sem skráðar eru á tilteknu tímabili. 3Pantanabók endurspeglar áætlun Marel, á ákveðinni dagsetningu, hverjar framtíðartekjur verða vegna samninga um sölu á vélbúnaði, hugbúnaði, þjónustu og varahlutum, sem hafa verið fjárhagslega tryggðir með innborgun eða tryggingum samkvæmt samningsákvæðum þar að lútandi. Slíkt mat endurspeglar áætlaðar heildarfjárhæðir samkvæmt slíkum samningum að frádregnum fjárhæðum sem færðar eru til tekna í bókum Marel á sömu dagsetningu. 4Handbært fé frá rekstri er skilgreint sem reiðufé frá rekstri að frádregnum sköttum og nettó fjárfestingum. 5Pro-forma aðlögun vegna kaupa félagsins á MPS voru 1.013 milljónir evra vegna pantana og 983 milljónir evra vegna tekna árið 2016.
Samsetning hluthafahóps
Samkvæmt hluthafaskrá voru hluthafar Marel 2.464 talsins þann 17. maí 2019. Tíu stærstu hluthafarnir fara með 66,5% hlut en þar af eiga íslenskir lífeyrissjóðir 38,4% hlut í félaginu. Kjölfestuhluthafinn, Eyrir Invest hf. er eigandi 28,4% útgefinna bréfa í Marel en þar á eftir koma Lífeyrissjóður verslunarmanna (9,9%) og Gildi (5,7%).
Þann 17. maí 2019 átti Marel 11.126.814 (1,7%) eigin hluti. Frjálst flot hluta í Marel var 71,6%.
Á aðalfundi félagsins 2019 samþykktu hluthafar tillögu um hlutafjárhækkun að nafnvirði allt að 100 milljónir króna með útgáfu nýrra hluta. Hluthafar samþykktu á þeim sama fundi að falla frá forgangsrétti sínum til áskriftar að hinum nýjum hlutum sem boðnir verða til sölu í útboði í tengslum við tvíhliða skráningu hlutabréfa félagsins í Euronext kauphöllinni í Amsterdam.
Um fyrirhugað útboð og skráningu
- Marel hyggur á hlutafjárútboð og skráningu í Euronext kauphöllina í Amsterdam til viðbótar við núverandi skráningu félagsins á Nasdaq á Íslandi.
- Hlutafjárútboðið samanstendur af (i) almennu hlutafjárútboði í Hollandi og á Íslandi og (ii) lokuðu hlutafjárútboði til ákveðinna fagfjárfesta í öðrum lögsögum, þ.m.t.: (x) lokað útboð í Bandaríkjunum til aðila sem eru hæfir fagfjárfestar (e. Qualified institutional buyers) eins og þeir eru skilgreindir samkvæmt og í samræmi við, reglu 144A í bandarískum verðbréfalögum (US Securities Act of 1933), með áorðnum breytingum eða samkvæmt annarri undanþágu frá eða í viðskiptum sem ekki falla undir skráningu kröfur US Securities Act; og (y) lokað útboð til fagfjárfesta utan Bandaríkjanna, þar sem útboð og sala fer fram í samræmi við reglugerð S (e. Regulation S) sem fellur undir bandarísku verðbréfalögin.
- Fyrirhugað hlutafjárútboð samanstendur af nýju hlutafé, allt að 100 milljónum nýrra hluta (sem samsvarar um 15% af útgefnu hlutafé), þ.m.t. er valréttur til að mæta umframeftirspurn.
- Gert er ráð fyrir að skráning í Euronext kauphöllina í Amsterdam eigi sér stað á öðrum ársfjórðungi 2019, háð markaðsaðstæðum.
- Gert er ráð fyrir að fagfjárfestar og almennir fjárfestar í Hollandi og á Íslandi, og ákveðnir hæfir fagfjárfestar í öðrum löndum geti tekið þátt í útboðinu.
Umsjónaraðilar (e. Joint Global Coordinators) útboðsins og skráningarinnar í Euronext kauphöllina í Amsterdam eru Citi og J.P. Morgan. Sameiginlegir sölutryggjendur (e. Joint Bookrunners) eru ABN Amro, ING og Rabobank. Sameiginlegir aðalumsjónaraðilar (e. Joint Lead Managers) og umsjónaraðilar almenns útboðs á Íslandi eru Arion banki og Landsbankinn. STJ Advisors eru óháðir fjármálaráðgjafar Marel í tengslum við útboðið og skráninguna í Euronext í Amsterdam.
Nánari upplýsingar veita :
Fjárfestatengsl
Tinna Molphy
IR@marel.com og sími 563 8001.
Almannatengsl
Auðbjörg Ólafsdóttir
audbjorg.olafsdottir@marel.com og sími 853 8626
Um Marel
Marel er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa yfir 6000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi.
Marel velti 1,2 milljarði evra árið 2018 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands árið 1992 og hluthafar félagsins eru um 2500 talsins.
Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:
Sé misræmi á milli tilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.
FYRIRVARI
Kynningarefni þetta eru ekki ætlað til útgáfu, dreifingar eða birtingar, hvort sem það er beint eða óbeint, í heild eða að hluta, í Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Suður-Afríku, Japan eða öðrum lögsagnarumdæmum þar sem slík háttsemi kynni að brjóta gegn gildandi lögum.
Kynningarefni þetta er einungis ætlað til upplýsinga og er ekki ætlað að jafngilda, og ætti ekki að skilja sem, tilboð til að selja eða tilraun til að falast eftir tilboðum til að kaupa verðbréf í Marel hf. („félagið“, og verðbréf í félaginu „verðbréfin“) í Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Suður-Afríku, Japan eða öðrum lögsagnarumdæmum þar sem slíkt tilboð, tilraun til að falast eftir, eða sala kynni að vera ólögleg án undangenginni skráningu, undanþágu frá skráningu eða að öðru leyti samkvæmt verðbréfareglum þess lögsagnarumdæmis.
Verðbréfin eru ekki, og munu ekki verða, skráð á grundvelli bandarískra laga um verðbréf frá 1933 (e. U.S. Securities Act 1933), með síðari breytingum („bandarísku verðbréfalögin“) og mega ekki vera boðin eða seld í Bandaríkjunum án skráningar eða að fenginni undanþágu frá skráningarskilyrðum bandarísku verðbréfalaganna. Félagið hefur engar fyrirætlanir um að skrá hluta af útboðinu í Bandaríkjunum eða að framkvæma almennt útboð í Bandaríkjunum.
Í Bretlandi er þessu skjali, auk annars kynningarefnis í tengslum við verðbréfin, einungis dreift til, og beint að, auk þess sem hvers kyns fjárfesting eða fjárfestingarstarfsemi sem þetta skjal varðar verður einungis aðgengileg, „hæfum fjárfestum“ (eins og þeir eru skilgreindir í gr. 86(7) í breskum lögum um fjármálaþjónustu og markaði frá 2000 (e. Financial Services and Markets Act 2000) og sem eru (i) aðilar með starfsreynslu í málum tengdum fjárfestingum sem falla undir skilgreininguna „fjárfestingasérfræðingar“ í gr. 19(5) í breskum lögum um fjármálaþjónustu og markaði (fjárhagsleg kynning) Skipun 2005 (e. Order 2005) („skipunin“); eða (ii) lögaðilar með hátt hreint virði sem falla undir gr. 49(2)(a) í (d) lið skipunarinnar (allir slíkir aðilar eru hér eftir nefndir „viðeigandi aðilar“). Aðilar sem eru ekki viðeigandi aðilar ættu hvorki að framkvæma aðgerðir á grundvelli þessa skjals né styðjast við það að öðru leyti.
Félagið hefur ekki heimilað hvers kyns útboð verðbréfanna til almennings í neinu aðildarríki evrópska efnahagssvæðisins fyrir utan Holland og Ísland. Að því er tekur til aðildarríkja evrópska efnahagssvæðisins, að Hollandi og Íslandi undanskildu, sem innleitt hafa lýsingarreglugerðina (e. Prospectus Directive) („viðeigandi aðildarríki“), hefur engin aðgerð verið, eða mun verða, framkvæmd í þeim tilgangi að bjóða almenningi verðbréfin, sem kynni að virkja skyldu til birtingar lýsingar í neinu viðeigandi aðildarríki (i) til lögaðila sem falla undir skilgreiningu lýsingarreglugerðarinnar á „hæfum fjárfesti“; eða (ii) undir öðrum kringumstæðum sem falla undir gr. 3(2) lýsingarreglugerðarinnar. Á grundvelli þessa ákvæðis tekur hugtakið „útboð verðbréfa til almennings“ til hver skyns samskipta, í hvaða formi sem er og með hvaða hætti sem er, sem innihalda upplýsingar um skilyrði útboðsins og verðbréfin sem boðin eru út sem myndi gera fjárfesti kleift að nýta, kaupa eða skrá sig fyrir verðbréfum, eins og það kann að vera skilgreint í því aðildarríki samkvæmt þeirri réttarheimild sem innleiðir lýsingarreglugerðina í því aðildarríki. Hugtakið „lýsingarreglugerðin“ þýðir Reglugerð 2003/71/EB (með síðari breytingum, þ.m.t. Reglugerð 2010/73/EB, að því marki sem hún hefur verið innleidd í viðeigandi aðildarríki), og tekur jafnframt til allra þeirra framkvæmdaráðstafana sem viðeigandi aðildarríki hefur innleitt.
Engin aðgerð hefur verið framkvæmd af hálfu félagsins sem myndi leyfa útboð verðbréfanna, umráð eða dreifingu þessa kynningarefnis eða hvers kyns útboðs eða kynningarefnis í tengslum við verðbréfin, í þeim lögsagnarumdæmum þar sem skylt er að taka til slíkra aðgerða.
Útgáfa, birting eða dreifing þessa kynningarefnis kann að vera takmörkuð af gildandi lögum ákveðinna lögsagnarumdæma og ættu aðilar innan þeirra lögsagnarumdæma þar sem slíkt efni er gefið út, birt eða dreift, að kynna sér þær takmarkanir.
Þessi tilkynning jafngildir ekki lýsingu. Tilboð um kaup á verðbréfum verður gert í kjölfar fyrirhugaðs útboðs og ættu fjárfestar að framkvæma fjárfestingu sína einungis á grundvelli upplýsinga sem birtar verða í lýsingunni sem verður aðgengileg í Hollandi og á Íslandi í tengslum við útboðið. Þegar lýsingin verður gerð aðgengileg verður hægt að nálgast afrit af henni hjá félaginu eða á vefsíðu félagsins, að kostnaðarlausu.
Citigroup Global Markets Limited og J.P. Morgan Securities plc (hinir „alþjóðlegu söluráðgjafar“), ABN AMRO Bank N.V., ING Bank N.V. og Cooperative Rabobank U.A. (ásamt alþjóðlegu söluráðgjöfunum, hinir „sameiginlegu sölutryggjendur“) og Arion Banki hf. og Landsbankinn hf. (hinir „sameiginlegu aðalumsjónaraðilar“, og ásamt hinum alþjóðlegu söluráðgjöfum og sameiginlegu sölutryggjendum nefndir „umsjónaraðilarnir“) starfa einungis fyrir félagið, og engan annan, í tengslum við útboðið eða verðbréfin og verða einungis ábyrgir gagnvart félaginu til að veita þeim þá vernd sem veitt er viðskiptavinum eða til að veita ráðgjöf í tengslum við útboðið eða viðskipti eða um það fyrirkomulag sem getið er í þessu skjali.
1 Markaðsupplýsingar byggja á mati Marel á utanaðkomandi heimildum og gögnum, svo sem gögnum frá rannsóknastofnunum, upplýsingum frá stjórnvöldum og öðrum opinberum upplýsingum, að meðtöldum upplýsingum frá Landbúnaðarráðuneyti Bandaríkjanna (e. the United States Department of Agriculture), Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu Þjóðanna (e. the Food and Agriculture Organisation of the United Nations), Brookings, the Groundfish Forum og Ragnar Tveterås.
2 Pantanabók endurspeglar áætlun Marel, á ákveðinni dagsetningu, um framtíðartekjur vegna samninga um sölu á vélbúnaði, hugbúnaði, þjónustu og varahlutum, sem hafa verið fjárhagslega tryggðir með innborgun eða tryggingum samkvæmt samningsákvæðum þar að lútandi. Slíkt mat endurspeglar áætlaðar heildarfjárhæðir samkvæmt slíkum samningum að frádregnum fjárhæðum sem færðar eru til tekna í bókum Marel á sömu dagsetningu.
3 Hlutfall pantana og tekna er fengið með því að deila í virði pantana á ákveðnum tíma með reikningsfærðum tekjum á sama tíma.