kynnir afkomu þriðja ársfjórðungs 2017

Placeholder Image

Þriðji ársfjórðungur 2017 – Sterk samkeppnisstaða og meðbyr á mörkuðum

Þriðji ársfjórðungur 2017 – Sterk samkeppnisstaða og meðbyr á mörkuðum

  • Tekjur á þriðja ársfjórðungi 2017 námu 247,0 milljónum evra [3F 2016: 234,8m].
  • EBITDA á þriðja ársfjórðungi 2017 var 45,8 milljónir evra sem er 18,6% af tekjum [3F 2016: EBITDA 41,5m, 17,7% af tekjum].
  • EBIT* á þriðja ársfjórðungi 2017 var 37,6 milljónir evra sem er 15,2% af tekjum [3F 2016: EBIT* 33,4m, 14,2% af tekjum].
  • Hagnaður á þriðja ársfjórðungi 2017 nam 23,2 milljónum evra [3F 2016: 17,3m]. Hagnaður á hlut var 3,29 evru sent [3F 2016: 2,42 evru sent].
  • Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 71,8 milljónum evra á þriðja ársfjórðungi 2017 [3F 2016: 33,2m]. Skuldahlutfall var x2,0 (nettó skuldir/EBITDA) við lok þriðja ársfjórðungs 2017.
  • Pantanabókin stóð í 467,6 milljónum evra við lok þriðja ársfjórðungs 2017 samanborið við 418,9 milljónir evra við lok annars ársfjórðungs 2017 [3F 2016: 305,1m].

Metpantanir voru á þriðja ársfjórðungi 2017, eða sem námu 296 milljónum evra. Markaðsaðstæður eru áfram góðar og samkeppnisstaða Marel er sterk. Pantanabókin stendur vel og nam 468 milljónum evra við lok fjórðungsins. Tekjur fyrir tímabilið námu 247 milljónum evra og rekstrarhagnaður (EBIT*) var 15,2%.

Tekjur fyrstu níu mánaða ársins 2017 námu 743 milljónum evra, samanborið við 733 milljónir evra (pro forma) fyrir sama tímabil 2016. EBIT* fyrstu níu mánaða ársins 2017 nam 111 milljónum evra (15% af tekjum), samanborið við 108 milljónir evra á pro forma grunni fyrir sama tímabil 2016 (14,8% af tekjum).

Kaup Marel á brasilíska félaginu Sulmaq sem framleiðir búnað fyrir frumvinnslu kjöts, gengu formlega í gegn 31. ágúst 2017. Árlegar tekjur Sulmaq nema um það bil 25 milljónum evra. Til skemmri tíma litið munu kaupin ekki hafa efnisleg áhrif á rekstrarniðurstöðu Marel. 

Sjóðstreymi frá rekstri var óvenjulega sterkt á þriðja ársfjórðungi. Skuldahlutfall félagsins heldur áfram að lækka þrátt fyrir kaupin á Sulmaq fyrir kaupverð nálægt 26 milljónum evra og nettó kaup á eigin bréfum fyrir 12 milljónir evra á tímabilinu. Við lok þriðja ársfjórðungs var skuldahlutfallið komið niður í x2,0 nettó skuldir/EBITDA, samanborið við x2,15 við lok annars ársfjórðungs 2017. Marel mun áfram fjárfesta til framtíðar til að vera betur í stakk búið til að styðja við frekari vöxt og virðisaukningu.

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:

„Samkeppnisstaða Marel er sterk og það er góður meðbyr á mörkuðum sem skilaði sér í aukinni sölu og námu pantanir á fjórðungsins 296 milljónum evra. Við erum ánægð með rekstrarniðurstöðu fjórðungsins, en tekjur félagsins námu 247 milljónum evra og EBIT var rúmlega 15%.

Þessi sterka niðurstaða fékkst, þrátt fyrir að rekstrarniðurstaðan í kjöti hafi gefið eftir á þriðja ársfjórðungi samanborið við fyrri fjórðunga. Firnasterk afkoma í kjúklingi á tímabilinu bætir það upp, sem er til vitnis um hvernig viðskiptamódel Marel virkar. Sem leiðandi félag á heimsvísu í þróun hátæknibúnaðar fyrir vinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski náum við að jafna sveiflur á milli rekstrareininga og skila góðri heildarniðurstöðu.   

Góð afkoma og sterkt sjóðstreymi gerir okkur kleift að halda áfram að  fjárfesta í nýsköpun og uppbyggingu innviða. Á þriðja ársfjórðungi gengu kaupin á Sulmaq formlega í gegn fyrir 26 milljónir evra og til viðbótar námu nettó kaup á eigin bréfum 12 milljónum evra á tímabilinu. Fjárhagsleg staða Marel er góð og nettó skuldir nema nú tvisvar sinnum EBITDA.

Við munum halda áfram að vinna með nýjum og núverandi viðskiptavinum okkar að því að umbreyta matvælaframleiðslu á heimsvísu“.

Horfur

Gert er ráð fyrir áframhaldandi góðum markaðsaðstæðum í kjúklingi og fiski, en í kjöti má gera ráð fyrir lakari horfum til skemmri tíma litið. Langtímahorfur eru góðar þvert á alla iðnaði. Sterk staða pantanabókar gefur til kynna að tekjur verði hærri á næstu misserum.

Marel stefnir á 12% árlegan meðalvöxt tekna næstu 10 árin.

  • Marel gerir ráð fyrir að markaðsvöxtur nemi 4-6% á næstu árum
  • Marel ætlar að vaxa hraðar en markaðurinn með sterkri markaðsstöðu og nýsköpun
  • Áframhaldandi traustur rekstur og sterkt sjóðstreymi getur stutt við 5-7% ytri meðalvöxt á ári
  • Marel gerir ráð fyrir að hagnaður á hlut vaxi hraðar en tekjuvöxtur

Áætlaður vöxtur verður ekki línulegur og veltur á þeim tækifærum sem í boði eru hverju sinni og hagsveiflum. Gera má ráð fyrir því að afkoman verði breytileg milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar, sveifla í pöntunum og tímasetninga stærri verkefna.

Kauphallardagur Marel í Danmörku

Marel heldur kynningarfund með fjárfestum og markaðsaðilum í sýningarhúsi sínu Progress Point í Kaupmannahöfn þann 2. nóvember 2017.

Kynningarfundur 26. október 2017

Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 26. október kl. 8:30 í húsnæði þess að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast.

Fjárhagsdagatal Marel

  • Kauphallardagur Marel                   2. nóvember 2017
  • 4. ársfjórðungur 2017                     7. febrúar 2018
  • 1. ársfjórðungur 2018                     2.maí 2018
  • 2. ársfjórðungur 2018                     25. júlí 2018
  • 3.ársfjórðungur 2018                      31.október 2018
  • 4. ársfjórðungur 2018                     6. febrúar 2019

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.

Frekari upplýsingar veitir: Tinna Molphy, Fjárfestatengill. Símar: 563-8603 og 853-8603

Marel Q3 2017 Frettatilkynning PDF Condensed Consolidated Interim Financial Statement 30 September 2017 (1)


Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password