Marel hf. - Veiting kauprétta

Placeholder Image

Stjórn Marel hf. ákvað þann 12. febrúar 2018 að veita starfsmönnum kauprétti að allt að 4,1 milljónum hluta í félaginu.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Er þetta í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á síðasta aðalfundi Marel 2. mars 2017. Kaupréttirnir verða veittir meðlimum framkvæmdastjórnar félagsins ásamt hópi valdra starfsmanna í lykilstöðum.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 2,923 á hlut.[1] Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða ákveðnar frá útgáfudegi kaupréttanna.
  • Ávinnslutími (e. vesting time) er þrjú ár frá úthlutun. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október eftir birtingu ársfjórðungsuppgjöra. Fyrsta nýtingartímabil mun hefjast þegar eftir birtingu fyrsta ársfjórðungsuppgjörs ársins 2021. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til fyrsta ársfjórðungs ársins 2022, þegar samningarnir renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
  • Kaupréttarhafar þurfa að kaupa hlutabréf í Marel fyrir því sem nemur fjárhæð hreins hagnaðar af kaupréttunum þegar skattar hafa verið dregnir frá, og halda þeim bréfum til starfsloka hjá Marel.

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú alls 14,0 milljónum hluta, sem nemur um 1,9% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 2,1 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:

Nafn Staða Nýr kaupréttur Áður úthlutaður, ónýttur kaupréttur Hlutafjáreign innherja Hlutafjáreign fjárhagslega tengdra aðila
Árni Oddur Þórðarson Forstjóri 650.000      960.000      64.634      67.235
Linda Jónsdóttir Fjármálastjóri 425.000      1.029.000      158.500      0
Árni Sigurðsson Yfirmaður stefnumótunar og þróunar 425.000      1.005.000      0      100.000
Anton de Weerd Yfirmaður alifuglaiðnaðar 250.000      905.000      15.000      0
David Wilson Yfirmaður kjötiðnaðar 250.000      947.000      27.300      0
Sigurður Ólason Yfirmaður fiskiðnaðar 250.000      805.000      0      0
Jesper Hjortshøj Yfirmaður frekari vinnslu 250.000      200.000      0      0
Davíð Freyr Oddsson Yfirmaður mannauðsmála 250.000      805.000      135.000      0
Folkert Bölger Yfirmaður alþjóðlegrar framleiðslu- og aðfangastýringar 250.000      0      17.862      0
Pétur Guðjónsson Yfirmaður viðskipta- og sölusviðs 250.000      1.120.000      219.430      0
Viðar Erlingsson Yfirmaður alþjóðlegrar nýsköpunar og þróunar 250.000      829.000      65.000      0

 

[1] Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á NASDAQ Iceland hf. þann 12. febrúar  2018, þ.e. ISK 366,00 á hlut, umreiknað með miðgengi Seðlabanka Íslands sama dag: EUR/ISK: 125,20


Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password