Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Abstract.jpg (6)

Dagana 1.-7. júní 2022 keypti Marel hf. 946.454 eigin hluti að kaupverði 575.649.124 kr. á Nasdaq Iceland og 54.800 eigin hluti að kaupverði 245.441 evra á Euronext Amsterdam.

Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlanir félagsins á Nasdaq Iceland og Euronext Amsterdam sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 1. júní 2022 í samræmi við heimild aðalfundar Marel hf. þann 16. mars 2022 til kaupa á eigin bréfum.

Marel hf. átti 14.664.411 eigin hluti fyrir viðskiptin sem nemur 1,9% af útgefnum hlutum í félaginu og átti að þeim loknum 15.665.665 eigin hluti eða sem nemur 2,03% af útgefnum hlutum í félaginu.

Marel hf. hefur keypt samtals 946.454 eigin hluti samkvæmt áætluninni á Nasdaq Iceland og nemur heildarkaupverð þeirra 575.649.124 kr. og 54.800  eigin hluti samkvæmt áætluninni á Euronext Amsterdam og nemur heildarkaupverð þeirra EUR 245.441.

Endurkaup samkvæmt báðum áætlunum munu nema að hámarki samtals 5.000.000 hlutum, þar af 4.000.000 á Nasdaq Iceland og 1.000.000 á Euronext Amsterdam, eða sem nemur samtals 0,65% af útgefnum hlutum í félaginu. Hámarks heildarkaupvirði endurkaupaáætlunar á Nasdaq Iceland nemur allt að 3.047.668.000 kr. og hámarks heildarkaupvirði á Euronext Amsterdam nemur allt að 5.590.000 evrum. Endurkaupaáætlunin á Nasdaq Iceland er í gildi á tímabilinu 1. júní 2022 til og með 1. september 2022. Endurkaupaáætlunin á Euronext Amsterdam er í gildi á tímabilinu 2. júní 2022 til og með 2. september 2022.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052 sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 6/2021. Reglubundnar tilkynningar verða í framhaldinu birtar á mánudögum.

Sjá nánar í viðhengi og á vefsíðu Marel:

Endurkaupaáætlanir Marel (á ensku)

 

Yfirlit viðskipta í tengslum við endurkaupaáætlun (á ensku)


Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password