Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlanir félagsins á Nasdaq Iceland og Euronext Amsterdam sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 1. júní 2022 í samræmi við heimild aðalfundar Marel hf. þann 16. mars 2022 til kaupa á eigin bréfum.
Marel hf. átti 14.705.704 eigin hluti fyrir viðskiptin sem nemur 1,91% af útgefnum hlutum í félaginu og átti að þeim loknum 15.428.776 eigin hluti eða sem nemur 2,00% af útgefnum hlutum í félaginu.
Marel hf. hefur keypt samtals 1.636.954 eigin hluti samkvæmt áætluninni á Nasdaq Iceland og nemur heildarkaupverð þeirra 993.257.124 kr. og 87.372 eigin hluti samkvæmt áætluninni á Euronext Amsterdam og nemur heildarkaupverð þeirra EUR 389.188.
Endurkaup samkvæmt báðum áætlunum munu nema að hámarki samtals 5.000.000 hlutum, þar af 4.000.000 á Nasdaq Iceland og 1.000.000 á Euronext Amsterdam, eða sem nemur samtals 0,65% af útgefnum hlutum í félaginu. Hámarks heildarkaupvirði endurkaupaáætlunar á Nasdaq Iceland nemur allt að 3.047.668.000 kr. og hámarks heildarkaupvirði á Euronext Amsterdam nemur allt að 5.590.000 evrum. Endurkaupaáætlunin á Nasdaq Iceland er í gildi á tímabilinu 1. júní 2022 til og með 1. september 2022. Endurkaupaáætlunin á Euronext Amsterdam er í gildi á tímabilinu 2. júní 2022 til og með 2. september 2022.
Framkvæmd endurkaupaáætlana er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052 sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 6/2021. Reglubundnar tilkynningar verða í framhaldinu birtar á mánudögum.
Leiðrétting: Í reglubundinni tilkynningu Marel þann 13. júní 2022 í tengslum við kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlanir, vantaði upplýsingar í viðhengi sem nú hefur verið leiðrétt.
Sjá nánar í viðhengi og á vefsíðu Marel:
Endurkaupaáætlanir Marel (á ensku)Yfirlit viðskipta í tengslum við endurkaupaáætlun (á ensku)