Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Placeholder Image

Í viku 2 keypti Marel hf. 1.297.115 eigin hluti að kaupverði 490.935.356 kr. eins og nánar er tilgreint hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
7.1.2019 09:39:02 283.704 368,00 104.403.072
8.1.2019 09:42:39 10.000 367,00 3.670.000
8.1.2019 11:38:19 2.579 369,50 952.941
8.1.2019 14:49:24 99.720 367,50 36.647.100
8.1.2019 14:52:03 50.000 367,50 18.375.000
9.1.2019 11:15:02 31.250 381,50 11.921.875
9.1.2019 13:42:45 52.954 382,50 20.254.905
9.1.2019 13:42:45 99.500 382,50 38.058.750
9.1.2019 13:42:45 100.000 382,50 38.250.000
10.1.2019 09:57:18 100.000 382,00 38.200.000
10.1.2019 09:58:42 50.000 382,00 19.100.000
10.1.2019 10:02:58 20.000 382,00 7.640.000
10.1.2019 11:51:56 50.000 383,50 19.175.000
10.1.2019 13:29:20 39.500 384,00 15.168.000
10.1.2019 13:34:32 6.049 384,00 2.322.816
10.1.2019 14:31:02 18.155 384,50 6.980.598
11.1.2019 10:07:17 85.000 385,50 32.767.500
11.1.2019 10:33:08 100.000 388,00 38.800.000
11.1.2019 10:46:19 98.704 387,50 38.247.800
Samtals   1.297.115   490.935.356

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. desember 2018 og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Marel hf., þann 22. nóvember 2018.

Marel hf. átti 11.613.518 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 12.910.633 eigin hluti eða sem nemur 1,89% af útgefnum hlutum í félaginu.

Marel hf. hefur keypt samtals 6.220.083 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,91% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 2.355.980.325 kr.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 17.305.940 hlutum eða sem nemur 2,5% af útgefnum hlutum í félaginu. Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 4. desember 2018 til og með 5. mars 2019.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

Fjárfestatengsl:

Nánari upplýsingar veita Tinna Molphy og Marinó Þór Jakobsson í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563-8001.


Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password