Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum samkvæmt endurkaupaáætlun

Placeholder Image

Í viku 11 keypti Marel hf. 939.374 eigin hluti á Nasdaq á Íslandi að kaupverði 470.090.838 kr. eins og nánar er tilgreint hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð
(gengi)
  Kaupverð (kr)
11.3.2020 09:35   50.000  537   26.850.000 
11.3.2020 09:38   50.000  535   26.750.000 
11.3.2020 09:49   50.000  532   26.600.000 
11.3.2020 09:49   100.000  529   52.900.000 
11.3.2020 13:20   50.000  533   26.650.000 
11.3.2020 13:35   300  530   159.000 
11.3.2020 13:35   3.700  530   1.961.000 
11.3.2020 14:06   9.752  530   5.168.560 
12.3.2020 09:52   25.000  469   11.725.000 
12.3.2020 09:54   50.000  469   23.450.000 
12.3.2020 10:13   50.000  460   23.000.000 
12.3.2020 10:35   100.000  468   46.800.000 
12.3.2020 11:32   30.000  480   14.400.000 
12.3.2020 11:32   20.000  480   9.600.000 
12.3.2020 14:21   11.870  483   5.733.210 
12.3.2020 15:21   25.000  490   12.250.000 
13.3.2020 11:23   33.760  497   16.778.720 
13.3.2020 11:25   1.101  495   544.995 
13.3.2020 11:27   5.000  497   2.485.000 
13.3.2020 11:34   15.000  497   7.455.000 
13.3.2020 12:01   100.000  496   49.600.000 
13.3.2020 12:04   48.899  495   24.205.005 
13.3.2020 14:17   1.180  495   584.100 
13.3.2020 14:26   50.000  500   25.000.000 
13.3.2020 14:35   50.000  500   25.000.000 
13.3.2020 15:14   8.812  504   4.441.248 
Samtals     470.090.838

 
    939.374

 

Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um þann 10. mars 2020 og er gerð í samræmi við heimild aðalfundar Marel hf., þann 6. mars 2019.

Marel hf. átti 10.773.814 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 11.713.188 eigin hluti eða sem nemur 1,52% af útgefnum hlutum í félaginu.

Marel hf. hefur keypt samtals 939.374 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,12% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 470.090.838 kr.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hlutum eða sem nemur 3,2% af útgefnum hlutum í félaginu. Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 11. mars 2020 til og með 4. september 2020.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052.

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið: IR@marel.com og í síma +354 563 8001.

Um Marel

Marel er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa um 6.300 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti um 1,3 milljarði evra árið 2019 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan árið 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam í júní 2019.


Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password