Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
27.12.2018 | 09:43:30 | 283.704 | 368,00 | 104.403.072 |
28.12.2018 | 09:41:50 | 283.704 | 368,00 | 104.403.072 |
Samtals | 567.408 | 208.806.144 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. desember 2018 og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Marel hf., þann 22. nóvember 2018.
Marel hf. átti 10.194.998 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 10.762.406 eigin hluti eða sem nemur 1,58% af útgefnum hlutum í félaginu.
Marel hf. hefur keypt samtals 4.071.856 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,60% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 1.550.441.127 kr.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 17.305.940 hlutum eða sem nemur 2,5% af útgefnum hlutum í félaginu. Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 4. desember 2018 til og með 5. mars 2019.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Fjárfestatengsl:
Nánari upplýsingar veita Tinna Molphy og Marinó Þór Jakobsson í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563-8001.