Sjálfbærni – Fjárfestadagar 2021

Meðfylgjandi er kynningin frá fjárfestafundi Marel í dag þar sem fjallað er um sjálfbærni, bæði í nýsköpun á hátæknilausnum til viðskiptavina og í starfsemi félagsins

Capital Markets Day

Í ár heldur Marel rafræna fjárfestadaga þar sem stjórnendur Marel ásamt sérfræðingum og viðskiptavinum veita einstaka 360° innsýn í starfsemi Marel.

Í dag, 9. desember 2021 kl. 14:00, fer fram fimmti fjárfestadagur Marel með fjárfestum og markaðsaðilum. Þessi fjárfestadagur er jafnframt sá síðasti í 360° viðburðaseríu félagsins í nóvember og desember, hver með sínu þema.

Yfirskrift fundarins í dag er “Sjálfbærni” en þar munu lykilstjórnendur Marel, þar á meðal Árni Oddur Þórðarson forstjóri, Þorsteinn Kári Jónsson forstöðumaður sjálfbærni og samfélagstengsla og Gréta María Grétarsdóttir framkvæmdastjóri nýsköpunar, samfélagsábyrgðar og fjárfestatengsla hjá Brim, fara yfir hvernig Marel, með stöðugri nýsköpun og nánu samstarfi við viðskiptavini, leggur lóð sína á vogarskálarnar við að tryggja sjálfbær, örugg og holl matvæli til ört vaxandi heimsbyggðar.

Skráning fer fram hér. Upptaka af fundinum, ásamt fyrri fundum verður aðgengileg á marel.com/cmd360.

Fjárfestadagar Marel 360° - viðburðasería

  • 7. október – Rafræn heimsókn í höfuðstöðvar Marel og hvítfiskvinnslu Brim
  • 11. nóvember – Tækifæri til vaxtar
  • 18. nóvember – Sala og þjónusta á heimsvísu
  • 2. desember – Stafrænar lausnir
  • 9. desember – Sjálfbærni


Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password