Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

FleXicut (4).jpg

Stjórn Marel hf. hefur tekið ákvörðun um að hefja endurkaupaáætlun þar sem keyptir verða allt að 4.000.000 eigin hlutir í félaginu á Nasdaq Iceland, eða sem samsvarar 0,52% af útgefnu hlutafé, fyrir hámarks heildarkaupvirði allt að 3.047.668.000 kr.

Tilgangur endurkaupanna er að standa við skuldbindingar sem leiða af kaupréttarsamningum við starfsmenn félagsins. Marel á nú 14.664.411 eigin hluti, eða sem nemur 1,9% af útgefnu hlutafé í félaginu.

Arion banki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum í félaginu og tímasetningu kaupa óháð félaginu og án áhrifa frá því. Framkvæmd áætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög nr. 2/1995 um hlutafélög, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“) og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052 sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 6/2021.

Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði á Nasdaq Iceland hvort sem er hærra. Kaup hvers viðskiptadags samkvæmt endurkaupaáætluninni munu að hámarki nema 25% af meðaldagsveltu undangenginna 20 viðskiptadaga á Nasdaq Iceland. Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram. Endurkaupaáætlunin tekur gildi 1. júní og gildir til 1. september 2022 í síðasta lagi, en félaginu er heimilt að hætta við endurkaupin hvenær sem er.

Samkvæmt heimild aðalfundar félagsins í mars 2022, er félaginu heimilt að kaupa eigin hluti allt að 10% af hlutafé félagsins. Kaup á eigin hlutum skulu vera í samræmi við skilyrði 55. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Heimildin gildir til 16. september 2023.



Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password