Marel boðar til kynningarfundar með markaðsaðilum og fjárfestum, þar sem Árni Oddur Þórðarson, forstjóri og Linda Jónsdóttir, fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins fyrir árið 2016.
Kynningarfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 9. febrúar kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Austurhrauni 9, Garðabæ.
Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast
Morgunverður frá kl. 8:00.