Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Skilmálar eru í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 6. mars 2019 og í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 18. mars 2020.
Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:
- Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 5,70 á hlut.* Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða ákveðnar frá útgáfudegi kaupréttanna.
- Ávinnslutími (e. vesting time) er þrjú ár frá úthlutun. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti fjórum sinnum á ári eftir birtingu ársfjórðungsuppgjöra. Fyrsta nýtingartímabil mun hefjast eftir birtingu ársuppgjörs fyrir árið 2023, á fyrsta ársfjórðungi 2024. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til fyrsta ársfjórðungs ársins 2025, þegar samningar renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
- Meðlimum framkvæmdastjórnar Marel ber að halda eftir hlutum sem nema fjárhæð hreins hagnaðar af kaupréttunum, þegar skattar hafa verið dregnir frá, þar til eftirfarandi fjárhæðarviðmiðum er náð, mælt í virði hlutafjáreignar í félaginu sem margfeldi af grunnárslaunum: forstjóri þrisvar sinnum árslaun; aðrir meðlimir framkvæmdastjórnar Marel tvisvar sinnum árslaun.
- Aðrir kaupréttarhafar þurfa ekki að halda eftir hlutum.
- Kaupréttur er aðeins gildur sé kaupréttarhafi í starfi hjá Marel (Marel hf. eða dótturfélaga þess) á nýtingardegi.
Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú 23,1 milljónum hluta, eða um 3,0% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 4,38 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.
Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:
Nafn |
Staða |
Nýr kaupréttur |
Áður úthlutaður, ónýttur kaupréttur |
Hlutafjáreign innherja |
Hlutafjáreign fjárhagslega tengdra aðila |
Árni Oddur Þórðarson |
Forstjóri |
400,000 |
1,952,000 |
72,643** |
67,235 |
Linda Jónsdóttir |
Fjármálastjóri |
215,000 |
1,350,000 |
339,817 |
0 |
Árni Sigurðsson |
Framkvæmdastjóri stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga |
215,000 |
1,640,000 |
117,317 |
100,000 |
Roger Claessens |
Framkvæmdastjóri kjúklingaiðnaðar |
150,000 |
450,000 |
0 |
0 |
David Wilson |
Framkvæmdastjóri kjötiðnaðar |
105,000 |
1,157,000 |
195,857 |
0 |
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir |
Framkvæmdastjóri fiskiðnaðar |
105,000 |
240,000 |
0 |
0 |
Folkert Bölger |
Framkvæmdastjóri framleiðslu- og aðfangastýringar |
105,000 |
700,000 |
17,862 |
0 |
Ulrika Lindberg |
Framkvæmdastjóri alþjóðamarkaða og þjónustu |
105,000 |
450,000 |
0 |
0 |
Anna Kristín Pálsdóttir |
Framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar |
105,000 |
267,000 |
0 |
0 |
* Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á Euronext Amsterdam þann 5. febrúar 2021, þ.e. EUR 5,70 á hlut.
** Fruminnherji á jafnframt 17,9% hlut í Eyri Invest hf. sem er stærsti hluthafi Marel hf.