Úthlutun kauprétta

Placeholder Image

Stjórn Marel hf. ákvað þann 24. apríl 2020 að veita starfsmönnum kauprétti að allt að 6.115.000 hlutum í félaginu, þar af 2.420.000 til framkvæmdastjórnar. Kaupréttirnir verða veittir meðlimum framkvæmdastjórnar og tilteknum starfsmönnum félagsins í lykilstöðum.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Skilmálar eru í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 6. mars 2019 og í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 18. mars 2020.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 3,80 á hlut.1  Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða ákveðnar frá útgáfudegi kaupréttanna.
  • Ávinnslutími (e. vesting time) er þrjú ár frá úthlutun. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október eftir birtingu ársfjórðungsuppgjörs. Fyrsta nýtingartímabil mun hefjast eftir birtingu fyrsta ársfjórðungsuppgjörs árið 2023. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til annars ársfjórðungs ársins 2024, þegar samningar renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
  • Meðlimum framkvæmdastjórnar Marel ber að halda eftir hlutum sem nema fjárhæð hreins hagnaðar af kaupréttunum, þegar skattar hafa verið dregnir frá, þar til eftirfarandi fjárhæðarviðmiðum er náð, mælt í virði hlutafjáreignar í félaginu sem margfeldi af grunnárslaunum: forstjóri þrisvar sinnum árslaun; aðrir meðlimir framkvæmdastjórnar Marel tvisvar sinnum árslaun.
  • Aðrir kaupréttarhafar þurfa ekki að halda eftir hlutum.
  • Kaupréttur er aðeins gildur sé kaupréttarhafi í starfi hjá Marel (Marel hf. eða dótturfélaga þess) á nýtingardegi.

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú 24,1 milljónum hluta, eða um 3,1% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 3,5 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:

Nafn

Staða

Nýr kaupréttur

Áður úthlutaður, ónýttur kaupréttur

Hlutafjáreign innherja

Hlutafjáreign fjárhagslega tengdra aðila

Árni Oddur Þórðarson

Chief Executive Officer

580,000

2,260,000

64,634

67,235

Linda Jónsdóttir

Chief Financial Officer

320,000

1,855,000

182,500

0

Árni Sigurðsson

Chief Strategy Officer and EVP Strategic Business Units

320,000

1,855,000

0

100,000

Roger Claessens

Executive Vice President Poultry

200,000

250,000

0

0

David Wilson

Executive Vice President Meat

200,000

957,000

195,857

0

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir

Executive Vice President Fish

200,000

40,000

0

0

Folkert Bölger

Executive Vice President Global Supply Chain

200,000

500,000

17,862

0

Ulrika Lindberg

Executive Vice President Global Markets and Services

200,000

250,000

0

0

Anna Kristín Pálsdóttir

Executive Vice President Innovation

200,000

67,000

0

0

1 Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á Euronext Amsterdam þann 24. apríl 2020, þ.e. EUR 3,80 á hlut.


Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password