Veiting kauprétta

Placeholder Image

Marel hf. – Veiting kauprétta Stjórn Marel hf. ákvað þann 6. júní 2019 að veita tilteknum starfsmönnum félagsins í lykilstöðum kauprétti sem samsvarar 4,1 milljónum hluta í félaginu.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Skilmálar eru í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 6. mars 2019 í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á sama fundi.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 3,70 á hlut.1 Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða ákveðnar frá útgáfudegi kaupréttanna.
  • Ávinnslutími (e. vesting time) er þrjú ár frá úthlutun. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október eftir birtingu viðkomandi ársfjórðungsuppgjörs. Fyrsta nýtingartímabil mun hefjast þegar eftir birtingu þriðja ársfjórðungsuppgjörs árið 2022. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum fram yfir uppgjör þriðja ársfjórðungs ársins 2023, þegar samningar renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
  • Kaupréttur er aðeins gildur sé kaupréttarhafi í starfi hjá Marel (Marel hf. eða dótturfélaga þess) á nýtingardegi.

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú 19,6 milljónum hluta, sem nemur um 2,6% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 2,5 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

Fyrirhugað er að ganga frá samningum vegna úthlutunar á ofangreindum kaupréttum eftir birtingu uppgjörs annars ársfjórðungs, þann 24. júlí 2019.

 


Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password