Veiting kauprétta

2018_Annual_report_n (6).jpg

Stjórn Marel hf. ákvað þann 12. febrúar 2019 að veita starfsmönnum kauprétti að allt að 3,75 milljónum hluta í félaginu.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Skilmálar eru í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 2. mars 2017 í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á sama fundi. Kaupréttirnir verða veittir meðlimum framkvæmdarstjórnar félagsins.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 3,25 á hlut.1 Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða ákveðnar frá útgáfudegi kaupréttanna.
  • Ávinnslutími (e. vesting time) er þrjú ár frá úthlutun. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október eftir birtingu ársfjórðungsuppgjörs. Fyrsta nýtingartímabil mun hefjast þegar eftir birtingu fyrsta ársfjórðungsuppgjörs árið 2022. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til fyrsta ársfjórðungs ársins 2023, þegar samningar renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
  • Kaupréttarhafar þurfa að kaupa hlutabréf í Marel fyrir því sem nemur fjárhæð hreins hagnaðar af kaupréttunum þegar skattar hafa verið dregnir frá, og halda þeim bréfum til starfsloka hjá Marel.

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú 15,7 milljónum hluta, sem nemur um 2,3% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 2 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:

Nafn Staða Nýr kaupréttur Áður úthlutaður, ónýttur kaupréttur Hlutafjáreign innherja Hlutafjáreign fjárhagslega tengdra aðila
Árni Oddur Þórðarson Forstjóri 650.000  1.610.000  64.634  67.235
Linda Jónsdóttir Fjármálastjóri 425.000  1.430.000  182.500  0
Árni Sigurðsson Framkvæmdastjóri
stefnumótunar og þróunar
425.000  1.430.000  100.000
Anton de Weerd Framkvæmdastjóri alifuglaiðnaðar 250.000  900.000  120.000  0
David Wilson Framkvæmdastjóri kjötiðnaðar 250.000  1.020.000  87.367  0
Sigurður Ólason Framkvæmdastjóri fiskiðnaðar 250.000  1.055.000  0
Jesper Hjortshøj Framkvæmdastjóri
frekari vinnslu
250.000  450.000  0
Davíð Freyr Oddsson Framkvæmdastjóri mannauðsmála 250.000  1.055.000  135.000  0
Folkert Bölger Framkvæmdastjóri framleiðslu- og aðfangastýringar 250.000  250.000  17.862  0
Ulrika Lindgren Framkvæmdastjóri þjónustu 250.000  0
Einar Einarsson Framkvæmdastjóri
alþjóðamarkaða
250.000 150.000 524.727 0
Viðar Erlingsson Framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar 250.000  1.055.000  89.000  0

 


1 Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á NASDAQ Iceland hf. þann 12. febrúar  2019, þ.e. ISK 444,00 á hlut, umreiknað með miðgengi Seðlabanka Íslands sama dag: EUR/ISK: 136,60


Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password