Veiting kauprétta

Placeholder Image

Stjórn Marel hf. ákvað þann 5. mars 2017 að veita framkvæmdastjórn félagsins kauprétti að allt að 3,2 milljónum hluta í félaginu.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Meginefni nýja kaupréttarkerfisins var samþykkt á aðalfundi Marel sem haldinn var 2. mars 2017, í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á sama fundi. Sex meðlimir framkvæmdastjórnar Marel fá sama magn kauprétta eða 200 þúsund hluti, þá fá yfirmenn alifugla- og kjötiðnaða 300 þúsund hluti, fjármálastjóri og yfirmaður stefnumótunar og þróunar fá 400 þúsund hluti og forstjóri fær 600 þúsund hluti.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 2,779 á hlut [1]. Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða ákveðnar frá útgáfudegi kaupréttanna.
  • Ávinnslutími (e. vesting time) er þrjú ár frá úthlutun. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október eftir birtingu ársfjórðungsuppgjöra. Fyrsta nýtingartímabil mun hefjast þegar eftir birtingu fyrsta ársfjórðungsuppgjörs ársins 2020. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til ársins 2021, þegar samningarnir renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
  • Kaupréttarhafar þurfa að kaupa hlutabréf í Marel fyrir því sem nemur fjárhæð hreins hagnaðar af kaupréttunum þegar skattar hafa verið dregnir frá, og halda þeim bréfum til starfsloka hjá Marel.

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú alls 11,8 milljónum evra, sem nemur um 1,6% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 1,7 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:

 

Nafn Staða Nýr kaupréttur Áður úthlutaður, ónýttur kaupréttur Hlutafjáreign innherja Hlutafjáreign fjárhagslega tengdra aðila
Árni Oddur Þórðarson Forstjóri 600.000      360.000      64.634      67.235
           
Linda Jónsdóttir Fjármálastjóri 400.000      725.000      62.500      0
           
Árni Sigurðsson Yfirmaður stefnumótunar og þróunar 400.000      605.000      0      100.000
           
Anton de Weerd Yfirmaður alifuglaiðnaðar 300.000      731.000      0      0
           
David Wilson Yfirmaður kjötiðnaðar 300.000      689.000      27.300      0
           
Sigurður Ólason Yfirmaður fiskiðnaðar 200.000      605.000      0      0
           
Jesper Hjortshøj Yfirmaður frekari vinnslu 200.000      12.000      0      0
           
Davíð Freyr Oddsson Yfirmaður mannauðsmála 200.000      665.000      75.000      0
           
Paul van Warmerdam Yfirmaður alþjóðlegrar framleiðslu- og aðfangastýringar 200.000      665.000      0      0
           
Pétur Guðjónsson Yfirmaður viðskipta- og sölusviðs 200.000      920.000      219.430      0
           
Viðar Erlingsson Yfirmaður alþjóðlegrar nýsköpunar og þróunar 200.000      725.000      0      0

 

 

 [1] Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á NASDAQ OMX Iceland hf. þann 3. mars 2017, þ.e. ISK 314,00 á hlut, umreiknað með miðgengi Seðlabanka Íslands sama dag: EUR/ISK: 113,00



Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password