Framlenging og breyting á langtímafjármögnun undirrituð

Placeholder Image

Með vísan til afkomutilkynningar Marel fyrir fyrsta ársfjórðung 2017 sem birt var þann 3. maí 2017, varðandi framlengingu og breytingu á fjármögnunarsamningum félagsins, staðfestist hér með að gengið hefur verið frá allri skjalagerð og samningur þessa efnis undirritaður og tekur gildi frá og með deginum í dag, 5. maí 2017.

Þessar breytingar auka sveigjanleika í rekstri og styðja við metnaðarfulla áætlun félagsins um vöxt og virðisaukningu til lengri tíma litið sem kynnt var á aðalfundi félagsins í mars síðastliðnum.

Linda Jónsdóttir Fjármálastjóri Marel:

„Við erum ánægð með að hafa lokið framlengingu fjármögnunar okkar á hagstæðum kjörum sem eykur sveigjanleika og styður við metnaðarfulla áætlun okkar um vöxt og virðisaukningu félagsins. Við erum þakklát fyrir áframhaldandi traust sem viðskiptabankar félagsins sýna okkur og fyrir mjög gott samstarf.“

Fjármögnunin er á hagstæðum kjörum sem endurspegla fjárhagslegan styrk Marel og markaðsaðstæður. Heildarlánsfjárhæðin nemur um 640 milljónum evra á vaxtaálaginu EURIBOR/LIBOR + 185 bps, sem mun taka breytingum í takt við skuldsetningarhlutfall félagsins í lok hvers ársfjórðungs. Lokagjalddagi fjármögnunarinnar er í maí 2022. 



Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password