Góður vöxtur í sölu og rekstrarhagnaði

Placeholder Image

Marel kynnir afkomu annars ársfjórðungs 2019 (allar upphæðir eru í evrum)

Helstu atriði 2F 2019

  • Pantanir námu 311,2 milljónum evra (2F18: 291,1m).
  • Tekjur námu 326,5 milljónum evra (2F18: 296,7m).
  • EBIT* nam 49,6 milljónum evra (2F18: 43,2m), sem var 15,2% af tekjum (2F18: 14,6%).
  • Hagnaður nam 34,3 milljónum evra (2F18: 29,5m).
  • Hagnaður á hlut (EPS) var 5,16 evru sent (2F18: 4,31 evru sent).
  • Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 22,3 milljónum evra (2F18: 56,4m).
  • Skuldahlutfall (nettó skuldir/EBITDA) var x0,6 í lok júní (1F19: x2,2). Markmið félagsins um fjármagnsskipan er að halda skuldahlutfalli milli x2-3 nettó skuldir/EBITDA.
  • Pantanabókin stóð í 459,4 milljónum evra við lok annars ársfjórðungs (1F19: 474,7m og 2F18: 523,2m)

*Rekstrarniðurstaða aðlöguð fyrir afskrift á óefnislegum eignum sem tengjast yfirtökum (PPA).

Ítarlegri umfjöllun um rekstur og afkomu félagsins má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningarinnar (íslenska útgáfan fjallar einungis um helstu þætti uppgjörsins, horfur, fjárfestafund og fjárhagsdagatal).

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:

Annar ársfjórðungur var sannarlega viðburðarríkur fyrir Marel. Óhætt er að segja að skráningin í Euronext kauphöllina í Amsterdam og útgáfa 15% nýs hlutafjár hafi borið hæst á fjórðungnum samhliða áframhaldandi vexti og góðri rekstrarafkomu.

Tekjur námu 327 milljónum evra, sem er 10% hækkun samanborið við sama tímabil í fyrra og rekstrarhagnaður jókst um 15%. EBIT framlegð var 15,2% til samanburðar við 14,6% á öðrum ársfjórðungi síðasta árs.

Mótteknar pantanir voru 311 milljónir evra sem er 7% aukning frá öðrum ársfjórðungi síðasta árs en lítilleg lækkun frá sterkum fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Við sjáum sveiflur á mörkuðum þar sem aukning er í pöntunum á stærri verkefnum í Asíu og Kína, á meðan hægst hefur á stærri pöntunum í Evrópu og Norður Ameríku. Á móti kemur góður vöxtur í endurnýjunar- og viðhaldsverkefnum hjá viðskiptavinum okkar í Evrópu og Norður Ameríku.

Við erum afar þakklát fyrir það traust sem Marel var sýnt í hlutafjárútboðinu í tengslum við tvíhliða skráningu félagsins á alþjóðlegan hlutabréfamarkað. Þátttakendur voru virtir alþjóðlegir hornsteinsfjárfestar auk einstaklinga og fagfjárfesta, hér heima og erlendis. Alls tóku 4.700 fjárfestar þátt í útboðinu en fyrir skráningu félagsins í Euronext Amsterdam voru hluthafar félagsins 2.500 talsins. Skráningin í Euronext kauphöllina í Amsterdam mun styðja við næstu skref í framþróun Marel þar sem aukinn seljanleiki bréfanna á alþjóðavísu veitir félaginu gjaldmiðil í tengslum við fyrirtækjakaup. Vöxtur félagsins er knúinn áfram af nýsköpun og markaðssókn ásamt ytri vexti.

Að því sögðu erum við á réttri leið með að ná vaxtarmarkmiðum okkar fyrir árið 2026, sem eru 3 milljarðar evra í tekjur og fyrsta flokks arðsemi. Í samstarfi við viðskiptavini okkar viljum við umbylta matvælaframleiðslu á heimsvísu með áherslu á fæðuöryggi, rekjanleika, sjálfbærni og hagkvæmni.

Skráning í Euronext kauphöllina í Amsterdam

Þann 7. júní 2019 voru hlutabréf Marel í evrum tekin til viðskipta í Euronext kauphöllinni í Amsterdam, til viðbótar við fyrri skráningu félagsins í Nasdaq kauphöllina á Íslandi. Boðnir voru til sölu 100 milljónir nýrra hluta, eða sem samsvarar um 15% af útgefnu hlutafé. Margföld umframeftirspurn var í útboðinu með mikilli eftirspurn frá einstaklingum og fagfjárfestum. Inngreiðsla hlutafjár að teknu tilliti til kostnaðar nemur 352 milljónum evra.  

Marel fjárfestir í Worximity Technology Inc.

Í júní 2019 gekk Marel frá samningum um kaup á 14,3% hlut í kanadíska hugbúnaðarfyrirtækinu, Worximity Technology Inc. fyrir 2,5 milljónir Kanadadollara ( 1,8 milljónir evra). Marel hyggst auka hlut sinn í 25% á næstu tólf mánuðum fyrir 2,5 milljónir Kanadadollara.

Worximity býður upp á greiningarlausnir og söfnun rauntímagagna í skýinu sem fara saman við Innova-framleiðsluhugbúnað Marel. Hjá félaginu starfa um 25 manns sem þjónusta yfir 200 viðskiptavini. Megináhersla félagsins er að þjónusta fyrirtæki sem starfa við vinnslu á kjöti, mjólkurafurðum og brauðmeti, og nota Worximity hugbúnaðinn við að nýta hráefni betur, minnka framleiðslutíma og auka afköst og gæði.

Horfur

Markaðsaðstæður hafa verið einstaklega góðar á síðustu árum en eru nú meira krefjandi í ljósi umróts á heimsmörkuðum. Marel býr að góðri dreifingu tekna á milli markaða og iðnaða í gegnum alþjóðlegt sölu- og þjónustunet sitt ásamt breiðu og framsæknu vöru- og þjónustuframboði. 

Marel stefnir að 12% meðalvexti árlega yfir tímabilið 2017-2026 sem byggir á öflugri markaðssókn og nýsköpun, samstarfi við lykilaðila og yfirtökum á fyrirtækjum.

  • Marel gerir ráð fyrir að almennur markaðsvöxtur nemi 4-6% til lengri tíma. Með sterkri markaðssókn og nýsköpun stefnir Marel að innri vexti umfram almennan markaðsvöxt.
  • Gera má ráð fyrir að áframhaldandi traustur rekstur og sterkt sjóðstreymi geti stutt við 5-7% ytri meðalvöxt á ári.
  • Marel gerir ráð fyrir að hagnaður á hlut vaxi hraðar en tekjur.

Áætlaður vöxtur er háður hagsveiflum og þeim tækifærum sem eru í boði hverju sinni og því má gera ráð fyrir að hann verði því ekki línulegur. Reikna má með breytilegri afkomu á milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar, sveifla í pöntunum og tímasetningu stærri verkefna.

Afkomuefni

Ítarlegri umfjöllun um rekstrarafkomu er að finna í enskri útgáfu fréttatilkynningar sem er í viðhengi. Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.

Fjárfestafundur

Fimmtudaginn 25. júlí 2019 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur með markaðsaðilum og fjárfestum. Þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á öðrum ársfjórðungi. 

Afkomufundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins, Austurhrauni 9 í Garðabæ. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00.

Fundinum verður vefvarpað á marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á marel.com/IR eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:

  • IS: +354 8007508
  • NL: +31 207219496
  • UK: +44 3333009031
  • US: +1 8335268395

Fjárhagsdagatal

Marel mun birta árshluta- og ársuppgjör félagsins og halda aðalfund samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali:

  • 3F 2019 - 23. október 2019
  • 4F 2019 - 5. febrúar 2020
  • Aðalfundur - 4. mars 2020

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða.

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa yfir 6000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1,2 milljarði evra árið 2018 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, en í júní 2019 fór fram tvíhliða skráning á 15% hlutabréfa í félaginu í Euronext kauphöllinni í Amsterdam.

Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:

Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Vakin er athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.

Gögn um markaðshlutdeild

Yfirlýsingar um markaðshlutdeild, þar með taldar þær sem varða samkeppnisstöðu Marel, byggjast á utanaðkomandi heimildum og gögnum, svo sem gögnum frá rannsóknastofnunum, iðnaðar- og sölunefndum og hópum, ásamt mati stjórnenda Marel. Séu upplýsingar ekki tiltækar fyrir Marel kunna slíkar yfirlýsingar að vera byggðar á áætlunum og mati utanaðkomandi aðila og/eða stjórnenda. Markaðsstaða er byggð á sölutölum nema annað sé tekið fram.

Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.

 

2Q19 Press Release Vf

 

 

 

Marel Q2 2019 Condensed Consolidated Interim Financial Statements Excel

 

 


Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password