Framboð til stjórnar, endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar 2024

Animal Wellbeing

Aðalfundur Marel hf. var haldinn rafrænt og í höfuðstöðvum félagsins þann 20. mars 2024 kl. 16:00.

Allar tillögur stjórnar til aðalfundar voru samþykktar. Tillögurnar og önnur skjöl eru aðgengileg á vefsíðu fundarins. Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðslu á fundinum er að finna í viðhengi.

Stjórnarformaður félagsins, Arnar Þór Másson, ávarpaði fundinn fyrir hönd stjórnar og Árni Sigurðsson, forstjóri, gaf skýrslu um fjárhagsárið 2023 og veitti innsýn í starfsemi félagsins.

Úr skýrslu stjórnarformanns Marel, Arnars Þórs Mássonar:
Þrátt fyrir áskoranir á árinu 2023 sýndi Marel þrautseigju í rekstrinum þar sem tekjur ársins voru 1,7 milljarðar evra og rekstrarhagnaður nam 8,9% af tekjum. Undanfarna 18 mánuði höfum við farið í  stefnumótandi aðgerðir sem miða að því að efla félagið enn frekar, auka skilvirkni rekstrar og bæta arðsemi. Á árinu 2023 urðu jafnframt breytingar í stjórnendateymi félagsins og nýr forstjóri tók við keflinu. Undir lok árs bárust stjórn félagsins í tvígang viljayfirlýsingar frá John Bean Technologies (JBT) varðandi mögulegt yfirtökutilboð í allt hlutafé í Marel. Þegar stjórn barst þriðja viljayfirlýsingin þann 19. janúar síðastliðinn, var það mat stjórnar að skilmálar yfirlýsingarinnar væru álitlegir og fælu í sér tækifæri fyrir hluthafa Marel að taka þátt í frekari virðissköpun til framtíðar. Var því ákveðið að ganga til viðræðna við JBT samhliða því að hafin var vinna við gagnkvæmar áreiðanleikakannanir. Á meðan viðræðum og áreiðanleikakönnunum stendur hefur stjórn félagsins, eftir sem áður, fulla trú á stefnu Marel í óbreyttri mynd og leggur áfram áherslu á frekari framgang og eflingu félagins um allan heim.

Úr skýrslu forstjóra Marel, Árna Sigurðssonar:
Marel er öflugt fyrirtæki og ég er stoltur að fá að leiða félagið og okkar frábæra teymi. Í störfum mínum hjá Marel hef ég unnið þvert á tekjusvið og rekstrareiningar félagsins í hartnær áratug og séð frá fyrstu hendi hvernig mannauður Marel tekst á við síbreytilegt rekstrarumhverfi og nær um leið framúrskarandi árangri með viðskiptavinum okkar. Það er ljóst að mikil sóknarfæri eru fyrir hendi og frá því að ég tók við starfi forstjóra hef ég lagt áherslu á þrjú meginatriði sem eru að efla rekstur og bæta arðsemi og fjármagnsskipan. Langtímavaxtarhorfur í okkar iðnaði eru áfram góðar og byggja á vaxandi eftirspurn eftir matvælum vegna fólksfjölgunar og ört stækkandi millistéttar á heimsvísu. Hlutverk Marel er að skila framúrskarandi lausnum, hugbúnaði og þjónustu til viðskiptavina okkar, um leið og við styðjum við aukna sjálfbærni í átt að kolefnishlutlausum heimi.

Eftirfarandi aðilar voru endurkjörnir í stjórn Marel hf.:

  • Ann Elizabeth Savage
  • Arnar Þór Másson
  • Ástvaldur Jóhannsson
  • Lillie Li Valeur
  • Ólafur Steinn Guðmundsson
  • Svafa Grönfeldt
  • Ton van der Laan

Stjórn hefur skipt með sér verkum og er Arnar Þór Másson áfram formaður og Ólafur Guðmundsson varaformaður.

Aðrar tillögur til fundarins

  • Aðalfundurinn staðfesti ársreikning félagsins fyrir árið 2023. Aðalfundurinn samþykkti jafnframt arðgreiðslu að fjárhæð 0,82 evrusent á hlut fyrir rekstrarárið 2023. Fyrirhuguð heildararðgreiðsla nemur um 6,2 milljónum evra, sem samsvarar um 20% af hagnaði ársins og er í samræmi við arðgreiðslustefnu félagsins.
  • Tillaga um starfskjarastefnu félagsins með tilteknum breytingum fyrir 2024 var samþykkt.
  • Hluthafar samþykktu tillögu um stjórnarlaun vegna ársins 2024 og þóknun til endurskoðenda fyrir liðið starfsár.
  • Tillögur um endurnýjun á heimildum í greinum 15.1 og 15.2 í samþykktum félagsins voru samþykktar. Grein 15.1 heimilar stjórn að hækka hlutafé um allt að 35 milljónir króna að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta, sem nota má í tengslum við kaupréttarsamninga við starfsmenn. Gildistími heimildarinnar er 5 ár frá samþykkt hennar. Grein 15.2 heimilar stjórn að hækka hlutafé um allt að 75 milljónir króna að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta, m.a. til þess að nota í tengslum við fyrirtækjakaup félagsins eða stefnumarkandi fjárfestingar. Gildistími heimildarinnar er 18 mánuðir frá samþykkt hennar.
  • Endurskoðunarskrifstofan KPMG ehf. var kosin endurskoðandi félagsins.
  • Tillaga um að endurnýja heimild félagsins til að kaupa eigin hlutabréf var samþykkt. Heimildinni var breytt þannig að nýting hennar er takmörkuð við endurkaupaáætlun eða í útboðsfyrirkomulagi gagnvart öllum hluthöfum Heimildin gildir í 18 mánuði frá samþykki. Eldri heimildir þessa efnis falla jafnframt niður.

Myndbandsupptökur af ávörpum stjórnarformanns og forstjóra verða gerðar aðgengilegar á vefsíðu fundarins marel.com/agm.

PDF


Get in touch

Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.

Login to get full access

Enter password to continue

Wrong password